Heimavellir ákveða að selja fleiri fasteignir

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla frá því í vor kom fram að félagið ætl­aði að selja fast­eignir fyrir tíu millj­arða fyrir árs­lok 2020. Nú hefur það ákveðið að selja eignir fyrir 17 millj­arða á tíma­bil­inu.

Heimavellir voru skráðir á markað fyrr á þessu ári.
Heima­vellir voru skráðir á markað fyrr á þessu ári. Mynd: Nasdaq Iceland

Heima­vellir til­kynntu til Kaup­hallar Íslands í gær­kvöldi að félagið hafi ákveðið að selja eignir fyrir alls 17 millj­arða króna á árunum 2018-2020 í stað tíu millj­arða króna líkt og fram hafði komið í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla sem birt var í vor.

Í til­kynn­ing­unni segir að eigna­salan muni „hafa þau áhrif á fjár­hag félags­ins að fjár­bind­ing mun minnka, svo og tekjur lækka í sam­ræmi við fækkun eigna. Þannig er gert er ráð fyrir að árs­velta 2019 og 2020 verði ríf­lega 3,5 millj­arðar króna og áætlað að EBITDA hlut­fall félags­ins verði 64 pró­sent á árinu 2019 og hækki í 67-68 pró­sent á árinu 2020.“

Heima­vellir ætla auk þess að kaupa eignir fyrir tæpa níu millj­arða króna fram til loka árs 2020, leggja áherslu á að eiga heil fjöl­býl­is­hús og að geta boðið upp á litlar og hag­kvæmar íbúðir í auknum mæli frá því sem nú er.

Alls er fast­eigna­safn Heima­valla metið á 55 millj­arða króna í dag. Að lok­inni end­ur­skipu­lagn­ingu á árinu 2020 stefnir félagið að því að eiga 1.645 íbúðir.

Gengi bréfa í Heima­völlum hefur hækkað lít­il­lega í dag, eða um 2,8 pró­sent. Við lok við­skipta í gær var það 1,08 krónur á hlut sem er lægsta gengi sem verið hefur á hlutum félags­ins.

Stærsta almenna leigufélagið

Heima­vellir er stærsta leigu­fé­lagið á almennum mark­aði og það eina slíka sem er skráð í Kaup­höll Íslands. Það átti 1.983 íbúðir í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins en tap­aði alls 36 millj­ónum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Vel gekk hjá félag­inu á þriðja árs­fjórð­ungi þar sem hagn­aður þess var 100 millj­ónir króna. Hann er þó allur til­komin vegna sölu­hagn­aðar á fast­eignum sem skil­aði Heima­völlum 112 millj­ónum króna á tíma­bil­inu.

Leigu­tekjur Heima­valla á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru tæp­lega 2,8 millj­arðar króna og sölu­hagn­aður vegna sölu á fast­eignum alls 222 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Heima­vellir áætla að tekjur árs­ins 2018 verði sam­tals 3,7 millj­arðar króna, að þær verði tæp­lega 3,9 millj­arðar króna á næsta ári og nái að verða rúm­lega fjórir millj­arðar króna árið 2020.

Undirbúa endurfjármögnun

Eigið fé Heima­valla var 18,7 millj­arðar króna í lok sept­em­ber og heild­ar­skuldir félags­ins 39,7 millj­arðar króna. Af lang­tíma­skuldum Heima­valla voru verð­tryggð lán frá lána­stofn­unum 30,6 millj­arðar króna. Þau lán eru að mestu frá Íbúða­lána­sjóði og uppi­staða þeirra eru lán sem veitt voru á grund­velli reglu­­gerðar um lán­veit­ingar sjóðs­ins frá árinu 2013 til sveit­­ar­­fé­laga, félaga og félaga­­sam­­taka sem ætl­­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leig­u­í­­búð­­um. Mark­mið þeirrar reglu­­gerðar er að „stuðla að fram­­boði á leig­u­í­­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­­legum kjöru­m“. Um síð­­­ustu ára­­mót skuld­uðu Heima­vellir 18,6 millj­­arða króna í slík lán. Þau félög sem hafa fengið slík lán mega ekki greiða arð né arðs­gildi.

Heima­vellir hafa verið að und­ir­búa end­ur­fjár­mögnun á lang­tíma­skuldum sínum og í til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér í lok ágúst sagði að fyr­ir­hugað væri að hrinda end­ur­fjár­mögn­un­inni í fram­kvæmd á næstu mán­uð­um. Því ferli er enn ekki lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár