Eigendur Samherja færa eignarhaldið til barna sinna

Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristján Vil­helms­son fara að mestu út úr eig­enda­hópi Samherja. Þeir hafa, ásamt fyrr­ver­andi eig­in­konu Þor­steins, gefið börn­unum sínum þorra sam­stæð­unnar.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru helstu stjórnendur og hafa verið helstu eigendur Samherja.
Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son eru helstu stjórn­endur og hafa verið helstu eig­endur Samherja. Mynd: Samherji

Aðal­eig­endur Samherja, fyrr­ver­andi hjónin Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga S. Guð­munds­dóttir, og Kristján Vil­helms­son hafa ákveðið að fram­selja hluta­bréfa­eign sína til barna sinna. Fyrir þá breyt­ingu áttu þau þrjú sam­an­lagt 86,5 pró­sent hlut í Samherja, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, en eftir hana munu þau eiga tvö pró­sent.

Sam­herj­a­sam­stæðan, sem sam­anstendur að Samherja hf. og Samherja Holding, átti eigið fé upp á 111 millj­arða króna í lok árs 2018 og það hefur án efa auk­ist í fyrra, sem var gjöf­ult ár í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Breyt­ing­arnar varða ein­ungis hluta­bréf í Samherja hf.

Frá þessu er greint á heima­síðu Samherja. Þar segir að stærstu hlut­hafar verði nú Baldvin og Katla Þor­steins­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 43,0 pró­sent hlut í Samherja og Dagný Linda , Halldór Örn, Kristján Bjarni og Katrín Krist­jáns­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­sent hluta­fjár. „Und­ir­bún­ingur þess­ara breyt­inga á eign­ar­haldi hefur staðið und­an­farin tvö ár en áformin og fram­kvæmd þeirra voru form­lega kynnt í stjórn félags­ins á miðju ári 2019, sam­kvæmt heima­síð­unni. Með þessum hætti vilja stofn­endur Samherja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­skyldu­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­steinn í rekstr­inum.

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri og Kristján Vil­helms­son útgerð­ar­stjóri munu áfram gegna störfum sínum hjá Samherja. Á heima­síð­unni er haft eftir þeim að þeir hafi fullan metnað til að taka þátt í áfram­hald­andi rekstri Samherja. „Félagið á mikla og bjarta fram­tíð fyrir sér og hefur vaxið og dafnað þrátt fyrir ýmsa erf­ið­leika. Starfs­fólk okkar hefur sýnt eig­endum og félag­inu ein­stakt traust í ára­tugi og lagt grunn að þeim stöð­ug­leika sem er lyk­il­at­riði í starf­sem­inni. Nú fáum við nýja kyn­slóð til liðs við okkur. Við fáum tæki­færi til að halda áfram að skapa verð­mæti með full­nýt­ingu hrá­efnis, veita vinnu og starfs­ör­yggi og tryggja enn frekar þau mik­il­vægu gildi um sjálf­bærni og vand­aða umgengni um auð­lind­ina sem verið hefur stefna Samherja frá upp­hafi.“

Skipt upp í tvennt 2018

Samherja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki á árinu 2018. Það var sam­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­em­ber 2017. 

Eftir það er þorri inn­­­lendrar starf­­sem­i Samherja og starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­sem­i og hluti af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­ur­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­fest­inga­­fé­lagi á Ísland­i.

Inni í þeim hluta er líka fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­ur­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­festi á Kýpur. Þau félög héldu meðal ann­ars utan um veiðar Samherja í Namibíu, þar sem sam­stæðan og stjórn­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta.

Auk þess er uppi rök­studdur grunur, eftir ítar­lega opin­berum Kveiks og Stund­ar­innar í nóv­em­ber í fyrra, um að Samherji hafi stundað umfangs­mikla skatta­snið­göngu í gegnum Kýpur og aflands­fé­lög og pen­inga­þvætti á fjár­magni sem end­aði inn á reikn­ingum norska bank­ans DNB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár