„Það er ljótt að plata“

Þing­maður Við­reisnar segir að í orðum inn­við­a­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins krist­all­ist það við­horf for­ystu flokks­ins að „sjálf­stæðir við­skipta­bankar eigi að hlusta eftir duttl­ungum stjórn­mála­manna þegar kemur að vaxta­á­kvörð­unum“.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er ljótt að plata, sagði for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurður Ingi Jóhanns­son, ábúð­ar­fullur og alvöru­gef­inn í sjón­varps­þætti dag­inn fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar. Þá var reyndar eng­inn að plata, en auð­vitað geta allir, hvort sem þeir eru Fram­sókn­ar­menn eða ekki, tekið undir þessa almennu sið­fræði sem við kennum börn­unum okkar á hverjum degi. Það er nefni­lega ljótt að plata.“

Þannig hóf Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Ástæðan fyrir upp­rifjun þing­manns­ins á þessum orðum Sigurðar Inga voru orða­skipti hans og Loga Ein­ars­sonar for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á þing­inu í síð­ustu viku.

Orð Lilju breyttu engu

„Þá var rætt um orð vara­for­manns Fram­sóknar og við­skipta­ráð­herra, Lilju Alfreðs­dóttur, sem vöktu mikla athygli, um að ofur­hagnað bank­anna ætti að nýta til að lækka vexti á hús­næð­is­lánum heim­il­anna. Í leið­inni var því hótað að ann­ars yrði banka­skattur end­ur­vak­inn. Hinir stjórn­ar­flokk­arnir skutu þetta strax hressi­lega niður, reyndar með því þving­aða og kurt­eis­lega orða­lagi sem gjarnan fylgir ást­lausum hjóna­böndnum. Rík­is­stjórnin hafði hvorki rætt þetta né vildi hún fara þessa leið.

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins full­yrti sem sagt hér á Alþingi í síð­ustu viku að bank­arnir hefðu hlustað eftir orðum við­skipta­ráð­herra og farið algjör­lega eftir þeim, alger­lega. Með öðrum orðum, það er skoðun Sigurðar Inga Jóhanns­sonar að bank­arnir hafi hækkað vext­ina minna en þeir hefðu ann­ars gert vegna þess að Lilja Alfreðs­dóttir við­skipta­ráð­herra sagði þeim að gera það. Hið rétta er að það er ekk­ert sem bendir til þess að við­skipta­bank­arnir hafi gert þetta. Þeir brugð­ust nákvæm­lega eins við stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans nú síð­ast og þeir gerðu áður, til að mynda í fjögur skipti á síð­asta ári,“ sagði Sigmar og bætti því við að orð Lilju hefðu engu breytt, „ekki nokkrum sköp­uðum hlut“.

Sagði þing­mað­ur­inn að eftir þetta stæði því þrennt.

„Í fyrsta lagi voru orð við­skipta­ráð­herra án allrar inn­stæðu. Þetta var póli­tísk lýta­að­gerð til að fegra ásjónu rík­is­stjórnar sem boð­aði lág­vaxtaum­hverfi fyrir kosn­ingar en getur ekki staðið við það. Í öðru lagi krist­all­ast í þessu það við­horf for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins að sjálf­stæðir við­skipta­bankar eigi að hlusta eftir duttl­ungum stjórn­mála­manna þegar kemur að vaxta­á­kvörð­unum. Og í þriðja lagi: Það er ljótt að plata,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár