Fæðingin er alltaf dálítil óvissuferð

Ljós­mæð­urnar Ella Björg Rögn­valds­dóttir og Ragna Þóra Sam­ú­els­dóttir hafa stofnað fyr­ir­tækið Bumbu­spjall sem býður upp á nám­skeið um með­göngu, fæð­ingu og sæng­ur­legu. Nám­skeiðin eru haldin í heima­húsum og þótt þátt­tak­endur fái fræðslu­efni er lögð áhersla á að svara þeim spurn­ingum sem brenna á verð­andi for­eldrum. Áhersl­urnar eru þrjár – með­ganga, fæð­ing og sæng­ur­lega.

Gott að geta fylgst að
Gott að geta fylgst að Ljós­mæð­urnar Ella Björg Rögn­valds­dóttir og Ragna Þóra Sam­ú­els­dóttir standa fyrir bumbu­spjalli þar sem konur geta fylgst að á með­göngu og sæng­ur­leg­unni. Í slíku umhverfi geta mynd­ast dýr­mæt tengsl. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ella Björg Rögn­valds­dóttir og Ragna Þóra Sam­ú­els­dóttir útskrif­uð­ust sem ljós­mæður í fyrra og segir Ella að hug­myndin að nám­skeið­unum hafi komið upp seint í nám­inu.

„Ég skoð­aði fyr­ir­bæri sem heitir „hóp­með­göngu­vernd“ í loka­verk­efn­inu mínu sem byggir á því að hópur kvenna á svip­uðum stað í með­göng­unni hitt­ist í með­göngu­vernd og ræðir saman um það sem þeim liggur á hjarta. Þetta hefur verið prófað hér á landi og gengið vel og hafa konur verið ánægðar með þetta form en það er enn sem komið er ekki búið að inn­leiða þetta.

Án þess að það hafi endi­lega verið með­vitað þá getur vel verið að þessi hug­mynd að nám­skeið­unum okkar Rögnu hafi sprottið upp svo­lítið út af því að ég var búin að sökkva mér ofan í að skoða hvað það gerir fyrir konur að vera saman í hóp á með­göngu, fá fræðslu í hóp og halda alltaf sama hóp­inn. Þessar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár