Íslenski hluti Samherja hagnaðist um 8,7 milljarða króna í fyrra

Sá hluti Samherja sem heldur utan um starf­semi sjáv­ar­út­vegs­ris­ans á Íslandi og í Færeyjum hagn­að­ist um millj­arða í fyrra. Enn á eftir að birta upp­gjör fyrir aðra erlenda starf­semi. Eigið fé Sam­herj­a­sam­stæð­unnar er komið yfir 100 millj­arða króna.

Frændurnir Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru helstu stjórnendur og eigendur Samherja.
Frænd­urnir Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son eru helstu stjórn­endur og eig­endur Samherja. Mynd: Samherji

Tekjur Samherja vegna þorra starf­semi félags­ins á Íslandi og í Færeyjum voru 43 millj­arðar króna í fyrra og hagn­aður af rekstri starf­sem­innar var 8,7 millj­arðar króna. Eigið fé þess hluta starf­sem­innar var 59,5 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og jókst um 10,4 millj­arða króna milli ára. Þetta kemur fram í frétt sem birt hefur verið á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Frá og með 30. sept­em­ber 2017 var starf­semi Samherja skipt upp í tvennt, inn­lendu starf­sem­ina og starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Færeyjum, sem fer fram undir hatti Samherja hf. og erlendu starf­sem­ina sem fer fram í félag­inu Samherji Holding ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­ar­hlutir Samherja í dótt­ur­fé­lögum í Þýska­landi, Noregi, Bret­landi og í fjár­fest­inga­fé­lagi á Íslandi.

Árs­reikn­ingar félag­anna tveggja hafa ekki verið sendir inn til árs­reikn­inga­skráar enn sem komið er og því er ekki hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hver afkoma Samherja Holding ehf. var í fyrra.

Helstu eig­endur Sam­herja eru frænd­­urn­ir, for­­stjór­inn Þor­­steinn Már Bald­vins­­son og útgerð­­ar­­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­­son.

Samherji hf. stundar ekki ein­ungis við­skipti með sjáv­ar­af­urðir, heldur á félagið einnig stóran hlut í smá­söluris­anum Högum, en það er fjórði stærsti hlut­hafi þess með 9,26 pró­sent eign­ar­hlut.

Eigið fé samstæðu komið yfir 100 milljarða

Samherji hagn­að­ist um 14,4 millj­arða króna á árinu 2017 og frá byrjun árs 2011 hefur hagn­aður félags­ins numið tæp­lega 110 millj­örðum króna hið minnsta. Við þann hagnað á eftir að bæta afkomu Samherja Holding á árinu 2017.

Eigin fé Samherja í lok árs 2017 var 94,4 millj­arðar króna en við upp­skipt­ingu félags­ins voru 364,6 millj­ónir evra, um 48,7 millj­arðar króna, fluttir yfir í Samherji Holding ehf. Það þýðir að eigið fé Samherja sam­stæð­unnar er orðið að minnsta kosti 108 millj­arðar króna ef gengið er út frá því að Samherji Holding ehf. hafi ekki tapað pen­ingum í fyrra. Þá á auk þess eftir að bæta við hagn­aði þess félags.

Samherji Holding ehf. sýslar þó ekki ein­ungis með eignir félags­ins erlendis í sjáv­ar­út­vegi. Félagið er líka umfangs­mik­ill fjár­festir á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði og er til að mynda stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eimskip, með 27,1 pró­sent eign­ar­hlut. Bald­vin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más og fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Samherja, er stjórn­ar­for­maður Eimskips og í jan­úar í ár var Vilhelm Már Þor­steins­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­stjóri skipa­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár