Aflaverðmæti útgerða jókst milli ára þrátt fyrir heimsfaraldur

Afla­verð­mæti þess sjáv­ar­fangs sem íslensk fiski­skip veiddu í fyrra er rúmum 20 millj­örðum krónum meira en það var árið 2018. Útgerðir lands­ins hafa því heilt yfir farið vel út úr heims­far­aldri kór­ónu­veiru.

Afla­verð­mæti fyrstu sölu á afla sem íslensk fisk­veiði­skip veiddu í fyrra var rúmum þremur millj­örðum krónum meira en á árinu 2019 og rúmum 20 millj­örðum krónum meira en það var á árinu 2018.

Afla­verð­mætið fyrir allt árið 2020 var 148 millj­arðar króna sem er það mesta sem verð­mætið hefur verið innan árs síðar árið 2015.

Þetta kemur fram í bráða­birgða­tölum um afla­verð­mæti sem Hagstofa Íslands birti á föstu­dag.

Stærstur hluti fisk­afl­ans er seldur í beinni sölu útgerða til vinnslu. Árið 2020 var 73 pró­sent af heild­ar­afla seldur í beinum við­skiptum og nam verð­mæti þess afla 80,7 millj­örðum sem er um 57 pró­sent af heild­ar­verð­mæti afl­ans. Verð­mæti sjó­frysts afla nam 36,6 millj­örðum og verð­mæti afla sem fór á fisk­mark­aði nam 23,1 millj­örð­um.

Þorsksalan dregur vagninn

Þessi verð­mæta­aukn­ing átti sér stað þrátt fyrir að afli botn­fisk­teg­unda hafi verið fjögur pró­sent minni en á árinu 2019, eða 488 þús­und tonn alls. Afla­verð­mæti hans jókst hins vegar um eitt pró­sent á síð­asta ári og var í heild 113,4 millj­arðar króna. Mest veidd­ist að venju af þorski, eða 278 þús­und tonn, sem var svo seldur fyrir um 76 millj­arða króna, sem er tæpum sex millj­örðum króna meira en þorsk­sala skil­aði útgerðum árið 2019 og tæpum 19 millj­örðum krónum meira en hún skil­aði árið 2018.

Engin loðna var veidd í fyrra, líkt og á árinu 2019. Upp­sjáv­ar­afl­inn var svip­aður í fyrra og árið áður, tæp­lega 530 þús­und tonn. Verðmæti þess afla jókst hins vegar um tíu pró­sent og var alls 23,8 millj­arðar króna. Þar mun­aði mestu um að verð­mæti veidds mak­rílafla jókst um 1,5 millj­arða króna og var um tíu millj­arðar króna.

Hagurinn vænkast um tæpa 500 milljarða frá hruni

Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber 2020 að íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hefðu hagn­ast um 43 millj­arða króna á árinu 2019. Það var um 60 pró­sent meiri hagn­aður en var af rekstri þeirra árið á undan þegar hann var 27 millj­arðar króna. Alls nam hagn­aður fyr­ir­tækj­anna 197 millj­örðum króna á fimm ára tíma­bili, frá byrjun árs 2015 og út árið 2019. Á sama tíma hafa þau greitt 43 millj­arða króna í tekju­skatt.

Frá hruni nemur sam­an­lagður hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja 439 millj­örðum króna.

Reikn­aður tekju­skattur þeirra hækk­aði um 50 pró­sent milli 2018 og 2019 og var níu millj­arðar króna í stað sex. Veiði­gjöld lækk­uðu hins vegar umtals­vert á milli ára og voru 6,6 millj­arðar króna, sem er 4,7 millj­örðum króna minna en þau voru árið áður.

Þetta kom fram í Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte f sem kynntur var á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2020 sem fór fram 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Gagna­grunn­ur­inn inni­heldur rekstr­ar­upp­lýs­ingar úr 89 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­geirans en fjár­hæð­irnar sem settar eru fram í honum hafa verið upp­reikn­aðar til að end­ur­spegla 100 pró­sent hans.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin áttu eigið fé upp á 297 millj­arða króna í lok árs 2018. Frá hruni og fram að þeim tíma batn­aði eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna um 376 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 10,3 millj­arða króna á árinu 2019. Frá árinu 2010 og út árið 2019 hafa þau greitt 103,2 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 479,2 millj­arða króna frá hruni og fram að byrjun árs í fyrra.

Þrjár blokkir halda á 43 prósent af kvóta

Í lok mars 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins á tæp­lega 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, sam­kvæmt sam­an­tekt Fiski­stofu. Innan þessa hóps eru aðilar sem eru tengdir þótt þeir séu það ekki sam­kvæmt lögum um fisk­veið­ar. Brim, Sam­herji og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eru fyr­ir­ferða­mestu útgerð­irn­ar. Þær halda á, einar og sér og ásamt félögum sem eig­endur þeirra eiga í, á tæp­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Litlar breyt­ingar hafa verið á umfangi kvóta þeirra stóru útgerð­ar­hópa sem tengj­ast inn­byrðis án þess þó að verða tengdir aðilar sam­kvæmt lög­um á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár