Maður sem vildi borga skatta, félagsskipti fjölmiðlamanns, kynferðisbrot, bruni og veira

Mest lesnu fréttir árs­ins 2021 sýndu fjöl­breytt áhuga­svið les­enda. Kór­ónu­veiran á full­trúa en er ekki jafn fyr­ir­ferða­mikil og árið á undan. Flestar mest lesnu frétt­irnar eiga það sam­eig­in­legt að þær snú­ast um hluti sem ein­hver gerði, ákvað eða fann fyrir.

5. Seldi fyrirtækið sitt til Twitter og ætlar að greiða alla skatta af sölunni á Íslandi

Har­aldur Þor­leifs­son, stofn­andi Ueno, seldi fyr­ir­tækið til Twitter í byrjun árs. Skömmu síðar greindi hann frá því að allir skattar sem greiddir yrðu vegna söl­unnar yrðu greiddir á Ísland­i.

Har­aldur sagði að hann hafi fæðst á Íslandi og að for­eldrar hans hafi verið lág­tekju­fólk. Auk þess glími hann við alvar­lega fötl­un. „En þar sem þetta land býður upp á fría skóla og fría heil­brigð­is­þjón­ustu þá gat ég ég dafn­að.“

Lestu frétt­ina í heild hér.

4. Aðalsteinn hættur á RÚV og í Kveik – „Ekki vinnustaður fyrir mig eins og stendur“

Aðal­steinn Kjart­ans­son, sem hafði verið lyk­il­maður í teym­inu sem stendur að frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV, ákvað í apríl að hætta störfum hjá rík­is­miðl­inum. Hann sagði að eftir margra mán­aða umhugsun hafi hann kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að RÚV væri „ekki vinnu­staður fyrir mig eins og stend­ur.“

Aðal­steinn sagð­ist ekki vera að fara í neinu fússi heldur að vand­lega athug­uðu máli. „Löng­unin til að gera góðar fréttir er sann­ar­lega enn til staðar og sem betur fer eru fleiri fjöl­miðlar sem geta veitt mér vett­vang til þess.“

Hann réð sig í kjöl­farið til starfa á Stund­inni.

Lestu frétt­ina í heild hér.

3. Gylfi Þór sagður til rannsóknar fyrir meint kynferðisbrot gegn barni

Í júlí var greint frá því að Gylfi Þór Sig­urðs­son, skærasta knatt­spyrnu­stjarna Íslands og leik­maður Everton í ensku úrvals­deild­inni, væri til rann­sóknar hjá lög­regl­unni í Manchester á Englandi vegna meints kyn­ferð­is­brots gegn barni.

[adspot]Knatt­spyrnu­fé­lagið Everton stað­festi að leik­maður liðs­ins væri til rann­sóknar og hefði verið sendur í leyfi frá lið­inu á meðan lög­reglu­rann­sókn stæði yfir, en breskir fjöl­miðlar höfðu ekki nafn­greint leik­mann­inn og vísa til laga­legra ástæðna.

Rannsókn á máli Gylfa stendur enn yfir.

Lestu frétt­ina í heild hér.

2. „Ég get ekki grátið fyrir innan afgreiðsluborðið“

Kjarninn ræddi við Vasile Tibor Andor, sem lifði elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg af, í júní. Tilefnið var að dag­inn eftir átti að kveða upp dóm í mann­dráps­máli yfir mann­inum sem bar eld að hús­inu.

Tibor missti allt sitt í elds­voð­an­um. Hann missti heim­ili sitt. Hann hlaut reyk­eitrun og bruna­sár. Það eru hins vegar afleið­ingar á hans and­legu líðan sem hann glímdi enn við.

Lestu frétt­ina í heild hér.

1. Faraldurinn tekur U-beygju í Suður-Ameríku

Á fyrri hluta árs­ins var far­aldur COVID-19 einna verstur í Suð­ur­-Am­er­íku. Í sumar og snemma í haust hafði hins vegar tek­ist að bólu­setja stóra hluta margra þjóða álf­unnar og bæði smit og dauðs­föll af völdum sjúk­dóms­ins voru á hraðri nið­ur­leið.

Bólu­setn­ingin ein og sér skýrði það ekki og vís­inda­menn klór­uðu sér í koll­inum um hver ástæðan væri.

Lestu frétt­ina í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár