Faraldurinn tekur U-beygju í Suður-Ameríku

„Það er ekki auð­velt að útskýra þetta,“ segir far­alds­fræð­ingur hjá WHO um þann snögga við­snún­ing sem virð­ist vera að eiga sér stað í far­aldr­inum í Suður-Ameríku. „Það er of snemmt að segja til hvað er raun­veru­lega að ger­ast.“

Mannþröng á Ipanema-ströndinni í Ríó á dögunum.
Mann­þröng á Ipanema-strönd­inni í Ríó á dög­unum. Mynd: EPA

Á fyrri hluta árs­ins var far­aldur COVID-19 einna verstur í Suður-Ameríku. Á síð­ustu vikum og mán­uðum hefur hins vegar tek­ist að bólu­setja stóra hluta margra þjóða álf­unnar og bæði smit og dauðs­föll af völdum sjúk­dóms­ins eru á hraðri nið­ur­leið. Bólu­setn­ingin ein og sér skýrir það ekki og vís­inda­menn klóra sér nú í koll­inum um hvað veldur.

[links]Í júní og júlí voru vís­inda­menn ugg­andi yfir þróun far­ald­urs­ins í Suður-Ameríku. Smitum fjölg­aði, ný bylgja hófst, og sjúkra­hús í mörgum löndum álf­unnar áttu fullt í fangi með sinna sjúkum. Þúsundir lét­ust dag­lega og bylgjan virt­ist engan endi ætla að taka.

En núna er staðan orðin allt önnur. Nýjum til­fellum hefur fækkað mjög hratt í nán­ast öllum ríkjum Suður-Ameríku en á sama tíma hefur kraftur verið settur í bólu­setn­ingar. En svo skörp hefur umbylt­ingin verið að sér­fræð­ingar eru ekki vissir um að bólu­setn­ingar einar og sér skýri hana, sér­stak­lega ef horft er til þess að full­bólu­settir eru að smit­ast í stórum stíl ann­ars staðar í heim­inum, flestir af delta-afbrigð­inu.

Far­ald­ur­inn var sér­lega skæður í Brasilíu, Argent­ínu, Chile, Perú, Kólumbíu, Úrúgvæ og Paragvæ á fyrri helm­ingi árs­ins. Bólu­setn­ingar fóru í flestum land­anna hægt af stað en engu að síður var tak­mörk­unum aflétt. Ár var liðið frá upp­hafi far­ald­urs­ins og ríkin, sem sum eru í hópi þeirra tekju­lægri í heim­inum, voru orðin óþreyju­full að koma hjólum efna­hags­lífs­ins af stað aftur. Far­ald­ur­inn fór við þessar aðstæður víða í hæstu hæðir og um mitt ár var langt í frá farið að birta til.

[adspot]

En svo breytt­ist allt. Og það frekar skyndi­lega. „Þetta er fyr­ir­bæri sem við vitum ekki nákvæm­lega hvernig við eigum að útskýra,“ segir far­alds­fræð­ing­ur­inn Carla Dom­ingues við New York Times, en hún sá um skipu­lag almennra bólu­setn­inga í Brasilíu til árs­ins 2019.

„Það er ekki auð­velt að útskýra þetta,“ segir Jairo Méndez Rico, far­alds­fræð­ingur hjá WHO. „Það er of snemmt að segja til hvað er raun­veru­lega að ger­ast.“

Hertar tak­mark­anir geta ekki útskýrt nið­ur­sveifl­una. Þá eru skólar víða byrj­aðir og nem­endur mættir aftur í skóla­stof­urnar. Tak­mörk­unum hefur víð­ast hvar verið aflétt frekar en hitt þótt sum ríki hafi tekið upp harð­ari aðgerðir á landa­mærum sínum á síð­ustu vikum og mán­uðum. Flestir sér­fræð­ingar eru sam­mála um að átak í bólu­setn­ingum í álf­unni eigi stærstan hlut að máli.

Í frétta­skýr­ingu New York Times er á það bent að stjórn­völd í Suður-Ameríku glími ekki við tregðu borg­ar­anna til bólu­setn­inga líkt og mörg lönd, m.a. Banda­ríkin, hafa nú verið að reka sig harka­lega á.

Bólu­setn­ingar í Brasilíu fóru hægt af stað en núna, í byrjun sept­em­ber, hafa um 65 pró­sent þjóð­ar­innar fengið annan eða báða skammta bólu­efnis. Þar með hafa Bras­il­íu­búar tekið fram úr Banda­ríkj­unum hvað þetta varðar. Þá eru yfir 70 pró­sent íbúa Chile og Úrúgvæ full­bólu­sett. Í Argent­ínu er staðan einnig nokkuð góð og þar er bólu­setn­ing yfir 60 pró­sent þjóð­ar­innar hafin.

Eitt af því sem gæti verið að hafa áhrif á stöð­una er að delta-afbrigðið hefur, að minnsta kosti enn sem komið er, ekki náð þeim miklu yfir­burðum á önnur afbrigði í Suður-Ameríku og víða ann­ars staðar. Þar eru þó önnur teikn á lofti. Ný afbrigði, s.s. lambda og mu – afbrigði sem Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur nýverið sett á var­úð­ar­lista sína. Þá eru vís­bend­ingar um að delta sé að ná yfir­hönd­inni. Sem dæmi eru nú, í fyrsta sinn, um helm­ingur greindra til­fella í Brasilíu af völdum þess veiru­af­brigðis.

En hin góða staða er tví­eggjað sverð. Sumir sér­fræð­ingar ótt­ast að fólk verði nú væru­kær­ara, hætti að nota grímur og gæta almennt að sér í smit­vörnum.

Að mati sumra kann svo að vera að hlut­falls­lega hafi smit verið útbreidd­ara í Suður-Ameríku en víð­ast ann­ars staðar á fyrstu mán­uðum far­ald­urs­ins. Margir hafi því myndað mótefni með nátt­úru­legum hætti. Það úti­lokar þó ekki end­ur­sýk­ingu af hinum nýju afbrigðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár