Markaðsvirði Síldarvinnslunnar jókst um tólf milljarða króna á einum degi

Virði hlutar Samherja, stærsta eig­anda Síld­ar­vinnsl­unnar, í félag­inu hækk­aði um næstum fjóra millj­arða króna í dag. Þau hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni sem systk­inin í Vísi fá hækk­uðu um einn millj­arð króna.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, hringir bjöllunni þegar Síldarvinnslan var skráð á markað í maí í fyrra.
Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, hringir bjöll­unni þegar Síld­ar­vinnslan var skráð á markað í maí í fyrra. Mynd: Nasdaq Iceland

Við lokun mark­aða á föstu­dag var mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar 163,9 millj­arðar króna. Þegar Kauphöll Íslands var lokað í gær var það 175,9 millj­arðar króna. Hluta­bréf í félag­inu höfðu hækkað um 7,4 pró­sent innan dags og 12 millj­arðar króna bæst við virði Síld­ar­vinnsl­unnar.

Beinn hlutur Samherja, stærsta eig­anda Síld­ar­vinnsl­unnar með 32,6 pró­sent eign­ar­hlut, er nú 57,3 millj­arða króna virði. Hlut­ur­inn hækk­aði um 3,9 millj­arða króna bara í dag. Hlutur Kjálka­nes, næst stærsta eig­anda Síld­ar­vinnsl­unnar með 17,4 pró­sent hlut, jókst á sama tíma úr 28,5 millj­örðum króna í 30,7 millj­arða króna, eða um 2,2 millj­arða króna.

Ástæða mik­illar hækk­unar á virði bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni, sem var úr öllum takti í Kauphöll Íslands í gær, var til­kynn­ing sem send var út á sunnu­dags­kvöld um að Síld­ar­vinnslan væri að kaupa útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í Grinda­vík á 31 millj­arð króna. Kaup­verðið verður greitt þannig að sex millj­arðar króna verða greiddir í reiðufé, 14 millj­arðar króna verða greiddir með nýju hlutafé í Síld­ar­vinnsl­unni og ell­efu millj­arða króna vaxta­ber­andi skuldir verða teknar yfir. Eigendur Vísis í dag eru systk­ina­hópur úr Grinda­vík. Sá sem á stærstan hlut er Pétur Haf­steinn Páls­son, for­stjóri Vís­is, sem á 20,14 pró­sent. Í hans hlut munu koma rúmir fjórir millj­arðar króna við söl­una. Fjórar systur hans og einn bróðir áttu að fá 3,2 millj­arða króna í reiðufé og hluta­bréfum við söl­una. Þar er hins vegar miðað við með­al­gengi bréfa síð­ustu fjóra mán­uð­ina, sem var 95,93 krónur á hlut. Eftir hækk­anir dags­ins í dag hefur virði þeirra hluta­bréfa sem systk­inin fá auk­ist um rúm­lega einn millj­arð króna.

Kaupin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, því að áreið­an­leika­könnun skili full­nægj­andi nið­ur­stöðu og að hlut­hafa­fundur Síld­ar­vinnsl­unnar sam­þykki kaup­in.

Þetta eru önnur risa­við­skipti Síld­ar­vinnsl­unnar á skömmum tíma. Fyrir mán­uði síðan var til­kynnt um kaup á 34,2 pró­sent hlut í norska lax­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish Holding AS fyrir um 13,7 millj­arða króna. Það félag á allt hlutafé í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi og rekur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum þar sem félagið er með rúm­lega 27 þús­und tonna leyfi fyrir eldi í sjó.

Markaðsvirðið hækkað um 75 milljarða frá skráningu

Síld­ar­vinnslan var skráð á markað í maí í fyrra. Miðað við útboðs­gengi var virði hennar 101,3 millj­arðar króna við skrán­ingu. Það hefur hækkað gríð­ar­lega síðan þá, eða um tæpa 75 millj­arða króna.

Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í félag­inu hófst af alvöru í fyrra­haust í aðdrag­anda þess að til­kynnt var um úthlutun á 904 þús­und loðnu­kvóta, þeim mesta sem úthlutað hafði verið í tvo ára­tugi. Síld­ar­vinnslan var á meðal þeirra útgerða sem fengu mest úthlut­að, eða 18,5 pró­sent alls kvóta sem fór til inn­lendra aðila.

Þann 23. sept­­em­ber 2021 var mark­aðsvirði félags­­ins tæp­­lega 116 millj­­arðar króna. Næstu vik­una hækk­­aði virði bréfa í Síld­­ar­vinnsl­unni um tæp 13 pró­­sent og dag­inn áður en til­­kynnt var um loðn­u­kvót­ann var mark­aðsvirðið rúm­­lega 130 millj­­arðar króna. Dag­inn eft­ir, þegar til­­kynnt var um umfang úthlut­aðs loðnu­kvóta, hækk­­uðu bréfin um níu pró­­sent.

Í skrán­ing­­ar­lýs­ingu Síld­­ar­vinnsl­unnar kom fram að Gunn­þór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, Axel Ísaks­­son og Jón Már Jóns­­son, sem allir eiga sæti í fram­­kvæmda­­stjórn Síld­­ar­vinnsl­unnar væru eig­endur félags­ins Hraun­lóns. Þeir keyptu félagið í lok árs 2020 á 640 millj­ónir króna en Hraun­lón átti þá 27,5 millj­ónir hluta í Síld­ar­vinnsl­unni.

Þegar Síld­ar­vinnslan var skráð á markað hafði virði hlut­ar­ins hækkað upp í 1.595 millj­ónir króna á fjórum mán­uð­um, eða um 955 millj­ónir króna.

Í hluta­fjár­út­boði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar Síld­ar­vinnsl­unnar á markað ákvað Hraun­lón að selja 37 pró­sent af bréfum sín­um. Fyrir það fékk félagið 608 millj­ónir króna. Því má segja, þegar kaup­verðið á heild­ar­hlutnum í lok árs 2020 er dregið frá því sem fékkst fyrir það selt var í hluta­fjár­út­boð­inu í fyrra­vor, að eig­endur Hraun­lóns hafi greitt 32 millj­ónir króna fyrir þann hlut sem þeir halda á í dag.

Það er sem stendur um eitt pró­sent hlutur í Síld­ar­vinnsl­unni sem met­inn er á tæp­lega 1,8 millj­arða króna.

Átti 55 milljarða króna í eigið fé um síðustu áramót

Síld­ar­vinnslan hagn­að­ist um 11,1 millj­arða króna á síð­asta ári, ef miðað er við með­al­gengi Banda­ríkja­dals en félagið gerir upp í þeirri mynt. Af þeirri upp­hæð féllu um þrír millj­arðar króna til vegna sölu­hagn­aðar sem mynd­að­ist þegar SVN eigna­fé­lag, stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvár, var afhentur fyrri hlut­höfum Síld­ar­vinnsl­unnar áður en félagið var skráð á markað í maí í fyrra.

Stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar lagði til við aðal­fund að greiddur yrði arður til hlut­hafa vegna reikn­ings­árs­ins 2021 upp á 3,4 millj­arða króna.

Félagið greiddi 531 millj­ónir króna í veiði­gjöld í fyrra og tæp­lega 2,1 millj­arð króna í tekju­skatt. Því námu sam­an­lagðar greiðslur vegna veiði­gjalds og tekju­skatts í rík­is­sjóð um 2,6 millj­örðum króna, eða 76 pró­sent af þeirri upp­hæð greiddur var hlut­höfum í arð og 23 pró­sent af hagn­aði Síld­ar­vinnsl­unnar vegna síð­asta árs.

Rekstr­ar­tekjur útgerð­ar­ris­ans voru 30,1 millj­arður króna og EBITDA-hagn­að­ur, hagn­aður fyrir afskrift­ir, fjár­magns­kostnað og skatta, var 10,7 millj­arðar króna.

Í árs­reikn­ingi félags­ins segir enn fremur að eigið fé þess hafi verið um 55,1 millj­arðar króna í lok árs í fyrra miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dali í lok árs og eig­in­fjár­hlut­fallið 67 pró­sent.

Vert er að taka fram að afla­heim­ildir sem félagið hefur til umráða eru færðar á nafn­virði í efna­hags­reikn­ingi. Upp­lausn­ar­virði þeirra getur verið mun hærra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár