Ríkisaðstoð á Íslandi undir meðaltali ríkja Evrópusambandsins

Samkvæmt skýrslu ESA um útgjöld til rík­is­að­stoðar hefur rík­is­að­stoð Íslend­inga auk­ist en þrátt fyrir það er hlut­fall rík­is­að­stoðar af lands­fram­leiðslu fremur lágt á Íslandi og tals­vert lægra en með­al­tal ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins

Rík­is­að­stoð Íslend­inga var í kringum 77 millj­ónir evra árið 2016 og er það 18 pró­sent hækkun frá árinu áður. Þetta kemur fram í nýj­ustu sam­an­burð­ar­skýrslu Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA um útgjöld til rík­is­að­stoðar í ESA EFTA-ríkj­unum, Íslandi, Liechtenstein og Noregi, sem birt var í dag. Þrátt fyrir þessa aukn­ingu er hlut­fall rík­is­að­stoðar af lands­fram­leiðslu fremur lágt á Íslandi og tals­vert lægra en með­al­tal ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins.

Rík­is­að­stoð felst í opin­berum stuðn­ingi við við­skipta­starf­semi. Hún getur verið í formi fjár­styrkja, skattaí­viln­ana, hag­stæðra lána, ábyrgða eða fjár­fest­inga sem ekki eru á mark­aðs­kjörum. Rík­is­að­stoð er helst veitt í formi skattaí­viln­ana og und­an­þága frá almennu trygg­ing­ar­gjaldi allt að 70 pró­sent, jafn­framt því sem veittir eru styrkir.

Þrátt fyrir aukn­ingu frá árinu 2015 þá er Ísland fyrir neðan með­al­tal ríkja í Evr­ópu­sam­band­inu. Mest rík­is­að­stoð á Ísland fer í rann­sóknir og þró­unar- og nýsköp­un­ar­verk­efni og segir í skýrsl­unni að vel sé gert í þeim málum miðað við í öðrum Evr­ópu­löndum. Einnig sé aðstoð til menn­ing­ar­mála yfir með­al­tali á Íslandi.

Noregur er tölu­vert fyrir ofan með­al­talið en Liechtenstein situr í botns­æt­inu með hvað minnsta rík­is­að­stoð af ríkjum Evr­ópu­land­anna.

Ríkisaðstoð nauðsynleg til margra hluta

Til sam­an­burðar juk­ust útgjöld Íslands til rík­is­að­stoðar um 10,5 pró­sent árið áður. Aukn­ing­una árið 2015 mátti einnig helst rekja til rík­is­að­stoðar sem Ísland veitti til verk­efna á sviði rann­sókna, þró­unar og nýsköp­unar. Rann­sókna­sjóður Rannís og tækni­sjóður Rannís fengu við­bót­ar­fram­lög og einnig var rík­is­að­stoð til byggða­þró­unar aukin.

ESA fram­fylgir reglum EES samn­ings­ins en er sam­tímis eina stofn­unin sem getur veitt und­an­þágur til rík­is­að­stoðar. Við­ur­kennt er að rík­is­að­stoð geti verið nauð­syn­leg til að standa vörð um inn­lend stefnumið, svo sem mark­mið um græn hag­kerfi, stuðn­ing við nýsköpun og til að tryggja að almanna­þjón­usta sé veitt. Hlutverk ESA er að yfir­fara hvort áformuð rík­is­að­stoð sé í sam­ræmi við þær kröfur sem gera ber á Evrópska efna­hags­svæð­inu til að rík­is­að­stoð telj­ist heimil og sé veitt án þess að skekkja sam­keppn­is­skil­yrði. Að slíkum skil­yrðum upp­fylltum getur ESA veitt und­an­þágu. Ríkjum EFTA ber að til­kynna rík­is­að­stoð til ESA fyr­ir­fram til sam­þykkis nema ef verk­efni sem nýtur opin­bers styrks fellur undir reglu­gerð­ina um hópund­an­þágur.

Sam­an­burð­ar­skýrslan er birt árlega og sýnir þróun rík­is­að­stoðar í EFTA-ríkj­unum sem og almennt á Evrópska efna­hags­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár