Katrín: Yfirsýn skortir yfir nýtingu og eignarráð yfir landi

Nú liggur fyrir frum­varp í sam­ráðs­gátt stjórn­valda um breyt­ingu á ýmsum lögum er varða eign­ar­ráð og nýt­ingu fast­eigna. Mark­miðið er að skapa stjórn­völdum betri yfir­sýn og mögu­leika til að stýra þróun eign­ar­ráða og nýt­ingar jarða, í sam­ræmi við land­kosti.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hyggst leggja fram frum­varp um breyt­ingu á ýmsum lögum er varða eign­ar­ráð og nýt­ingu fast­eigna. Markmið frum­varps­ins er að auka gagn­sæi og treysta yfir­sýn og stýri­tæki stjórn­valda, í þeim til­gangi að nýt­ing lands sé í sam­ræmi við land­kosti og með hags­muni sam­fé­lags­ins og kom­andi kyn­slóða að leið­ar­ljósi.

Frum­varpið er komið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 23. febr­úar næst­kom­andi.

Í þessu skyni eru lagðar til breyt­ingar á eft­ir­töldum fjórum laga­bálkum: Lögum um eign­ar­rétt og afnota­rétt fast­eigna, þing­lýs­inga­lögum, lögum um skrán­ingu og mat fast­eigna og jarða­lögum.

Að einhverju leyti má rekja stöðuna til alþjóðlegrar þróunar

Katrín segir við til­efnið að á grunni þeirrar grein­ingar sem hún hefur látið vinna þyki henni ljóst að veru­lega skorti á yfir­sýn stjórn­valda yfir nýt­ingu og eign­ar­ráð yfir landi og öðrum fast­eignum. Að ein­hverju leyti megi rekja þessa stöðu til alþjóð­legrar þró­unar, þar sem póli­tísk umræða hafi verið af skornum skammti á sama tíma og eft­ir­spurn eftir fast­eignum hafi auk­ist og verð hækkað. Skýringa sé einnig að leita í þeirri stað­reynd að mála­flokk­ur­inn heyrir undir mörg ráðu­neyti. Verði þetta frum­varp að lögum náist fram mark­mið um stór­bætta yfir­sýn og sam­hæf­ingu.

„Með frum­varp­inu er stjórn­völdum sköpuð betri staða til að stýra þróun í mála­flokknum, í sam­ræmi við skil­greind mark­mið um sjálf­bæra land­nýt­ingu í efna­hags­legu, sam­fé­lags­legu og umhverf­is­legu til­liti. Skyldur okkar eru ekki aðeins við sam­fé­lag dags­ins í dag heldur einnig gagn­vart kom­andi kyn­slóðum,“ segir ráð­herr­ann.

Undanþáguheimildir skýrðar nánar

Meg­in­efni frum­varps­ins er í fyrsta lagi að und­an­þágu­heim­ildir vegna skil­yrða fyrir fast­eigna­kaupum aðila sem búsettir eru í ríkjum utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins verði skýrðar nánar, en ákvæði núgild­andi laga um það efni eru almenn og óljós.

Í öðru lagi er gert ráð fyrir að kaup­verð eignar skuli koma fram í þing­lýstu afsali, en kaup­verð er meðal ann­ars for­senda ákvörð­unar fast­eigna­mats. Í þriðja lagi er lagt til að Land­eigna­skrá á vegum Þjóð­skrár Íslands verði vett­vangur fyrir sam­ræmda opin­bera skrán­ingu á landupp­lýs­ingum.

Sjónarmiðum um náttúruvernd, og byggðaþróun gert hærra undir höfði

Í fjórða lagi verði sjón­ar­miðum um nátt­úru­vernd, byggða­þróun og sjálf­bærni gert hærra undir höfði í mark­miðs­á­kvæði jarða­laga. Sett verði inn skil­yrði um sam­þykki fyrir aðila­skiptum að landi í skil­greindum til­fellum. Á það meðal ann­ars við ef kaup­andi lög­býlis á fyrir fleiri lög­býli sem eru sam­an­lagt 50 hekt­arar eða meira að stærð, ef fast­eign er 350 hekt­arar eða stærri og ef kaup­andi og tengdir aðilar eiga fast­eignir sem eru sam­an­lagt 10.000 hekt­arar eða meira að stærð. Í sömu til­fellum þurfi einnig að afla sam­þykkis fyrir breyt­ingu á yfir­ráðum yfir lög­að­ila sem er eig­andi lands, svo sem ef eign­ar­hlutur í fyr­ir­tæki skiptir um hendur að hluta eða í heild.

Þá er gert ráð fyrir auk­inni upp­lýs­inga­skyldu til­tek­inna lög­að­ila um eign­ar­hald þeirra. Loks eru lögð til skýr­ari skil­yrði fyrir afskrán­ingu lög­býla og lausn lands úr land­bún­að­ar­notum.

Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að frum­varpið byggi á viða­mik­illi grein­ing­ar­vinnu og á fyrri skýrslum stjórn­valda um álita­efni tengd nýt­ingu lands. Til ráð­gjafar við samn­ingu frum­varps­ins voru Eyvindur G. Gunn­ars­son, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands, og Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst, fram­kvæmda­stjóri Laga­stofn­unar Háskóla Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár