Vill ekki meina að stjórnvöld taki „hænuskref“ varðandi heimildir lífeyrissjóðanna

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar eru ekki sam­mála um það hvort stjórn­völd séu að taka nægi­lega stór skref í því að auka heim­ildir líf­eyr­is­sjóð­anna til að fjár­festa erlendis.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir það mikið gleði­efni að sjá hversu sterkt líf­eyr­is­sjóða­kerfið á Íslandi standi. „Það er ekki langt síðan íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið fékk fyrstu ein­kunn í sam­an­burði við önnur kerfi. Það nemur nú um tvö­faldri lands­fram­leiðslu þannig að það er ekki hægt að halda því fram að hér sé verið að tala um ein­hver hænu­skref þegar líf­eyr­is­sjóð­irnir fá á hverju ári auknar heim­ildir til þess að fara út vegna þess að í sjálfu sér má segja að eins og sakir standa sé hvert pró­sentu­stig eins og 2 pró­sent af lands­fram­leiðslu.“

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar spurði Bjarna hvort hann ætl­aði að taka stærri og ákveðn­ari skref í því að heim­ila líf­eyr­is­sjóðum að fjár­festa í erlendum eignum.

Hún orð­aði það þannig að rík­is­stjórnin væri að stíga „hænu­skref til að auka heim­ildir líf­eyr­is­sjóð­anna til að fjár­festa erlendis“.

„Þegar maður les álit Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og fleiri sést að það er hætta á því að það veiki sam­keppn­isum­hverfi og skapi hættu á eigna­bólum. Sjálfir hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir bent á að út frá hags­munum sjóð­fé­laga, þeirra sem hafa greitt inn í líf­eyr­is­sjóð­ina, skap­ist tals­verð hætta á bólu­myndun á inn­lendum eigna­mark­aði sem getur leitt til þess að inn­leidd eigna­söfn líf­eyr­is­sjóða verði að ein­hverju leyti ósjálf­bær til fram­tíðar,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Þessu til við­bótar væri fjár­magn líf­eyr­is­sjóð­anna ráð­andi í flestum stærstu skráðu fyr­ir­tækj­unum hér á landi. „Með öðrum orðum er kom­inn upp sá vandi að sömu eig­endur eru að bönk­unum og helstu við­skipta­vinir þeirra. Í þessu er auð­vitað fólgin mikil áhætta eins og líf­eyr­is­sjóð­irnir meðal ann­ars benda á.“

Benti hún á að ráð­herr­ann hefði lagt fram mál eða drög að því að taka ætti þau skref að heim­ila líf­eyr­is­sjóð­unum að fjár­festa í útlöndum úr helm­ingi upp í 68 pró­sent frá þessu ári til árs­ins 2038 og þess vegna tal­aði hún um hænu­skref.

Þor­gerður Katrín spurði því hvort Bjarni sæi mögu­leika á því að fara hraðar í sak­irnar og þá taka líka stærri skref. „Það er verið að tala um hvort það eigi ekki að fara allt upp í 70 pró­sent, jafn­vel 75 pró­sent, heim­ila líf­eyr­is­sjóð­unum að gera það. Í fyrsta lagi spyr ég: Sér hann fram á það að taka stærri og ákveðn­ari skref og mörkin verði þá rýmri fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina til að fjár­festa í erlendum eignum sem að þeirra mati skiptir máli til að verð­gildi rýrni ekki fyrir sjóð­fé­laga sem þeir síðan bera ábyrgð á?“ spurði hún.

Áskorun að hafa ekki stærra hagkerfi þegar lífeyrissjóðakerfið er tvöföld landsframleiðsla

Bjarni svar­aði og benti á að Þor­gerður Katrín væri þarna að vísa í frum­varp sem nýlega var í sam­ráðs­gátt­inni. „Við afgreiddum málið úr rík­is­stjórn í gær með nokkrum breyt­ingum eftir sam­ráðs­gátt. Það er nú í þing­flokkum og verður því dreift hér á þing­inu von­andi í dag eða á morgun. En já, ég get sagt sem svo að ég mun leggja það til að við tökum nokk­urt til­lit til fram kom­inna athuga­semda, en við erum þó ekki að galopna fyrir erlendu heim­ild­irnar heldur fylgja þeim ráðum sem við höfum fengið og byggjum á úttekt um þessi mál.“

Hann sagði að það væri í sjálfu sér mikið gleði­efni að sjá hversu sterkt líf­eyr­is­sjóða­kerfið á Íslandi stæði.

„Það er ekki langt síðan íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið fékk fyrstu ein­kunn í sam­an­burði við önnur kerfi. Það nemur nú um tvö­faldri lands­fram­leiðslu þannig að það er ekki hægt að halda því fram að hér sé verið að tala um ein­hver hænu­skref þegar líf­eyr­is­sjóð­irnir fá á hverju ári auknar heim­ildir til þess að fara út vegna þess að í sjálfu sér má segja að eins og sakir standa sé hvert pró­sentu­stig eins og 2 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Það eru háar fjár­hæðir. Og þegar við erum farin að telja breyt­ing­arnar í tugum pró­senta upp í, segjum 50 pró­sent upp í 65 pró­sent, þá erum við að ræða um breyt­ingu sem nemur 30 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Það eru nýjar heim­ildir til að fjár­festa í útlöndum. Það er skyn­sam­legt að gera og það er mjög ánægju­legt að við þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu,“ sagði hann.

Bjarni sagði jafn­framt að á hinn bóg­inn væri það rétt sem Þor­gerður Katrín nefndi. „Það eru miklar áskor­anir í því fyrir ekki stærra hag­kerfi en okkar að hafa líf­eyr­is­sjóða­kerfi sem er tvö­föld lands­fram­leiðslan. Að finna fjár­fest­ing­ar­kosti og finna góða ávöxt­un­ar­mögu­leika er því mikil áskorun. Þess vegna meðal ann­ars held ég að það sé mjög tíma­bært að stíga þessi skref.“

Fyrst og fremst til þess að verja íslensku krónuna

Þor­gerður Katrín sagð­ist fagna því ef tekið hefði verið til­lit til þess­ara athuga­semda líf­eyr­is­sjóð­anna.

„Þeir eru mark­visst að benda á að það sé raun­veru­leg hætta, eins og þeir hafa nefnt það sjálfir, á ruðn­ings­á­hrifum og bólu­myndun á inn­lendum eigna­mark­aði sem síðan geti leitt til þess, sem er nátt­úru­lega enn alvar­legra, að inn­lend eigna­söfn líf­eyr­is­sjóða verði að ein­hverju leyti ósjálf­bær til fram­tíðar. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hljóta að benda á þetta og ég fagna því ef rík­is­stjórnin ætlar að stíga eitt­hvað lengri skref en hænu­skref. Þetta eru hænu­skref eins og þetta blasir við núna. Það má kannski ekki nefna fíl­inn í þess­ari postu­líns­búð en það er auð­vitað íslenska krónan.

Við sjáum að fyrst og fremst er það yfir­lýst ástæða fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að fara var­lega í sak­irnar og það er ekk­ert óeðli­legt meðan við við erum með krón­una. En það er alveg ljóst að það er til að koma í veg fyrir að stöð­ug­leika gjald­eyr­is­mark­aða verði ógnað. Þetta er fyrst og fremst til þess að verja íslensku krón­una og ekk­ert annað og það er reyndar önnur umræða,“ sagði hún.

En á meðan Íslend­ingar búa við slíkt ástand telur Þor­gerður Katrín engu að síður mik­il­vægt að skila­boðin verði skýr, að stigin verði stærri skref og tekið verði til­lit til þess­ara athuga­semda líf­eyr­is­sjóð­anna um að fjár­festa enn frekar í eignum í útlöndum.

Ekki sanngjarnt að kenna krónunni um

Bjarni svar­aði í annað sinn og sagði að meðal þess sem kæmi fram í nýút­kominni skýrslu um þetta efni væri að ekki væri ástæða til að ætla að fjár­fest­ingar erlendis væru í eðli sínu eitt­hvað áhættu­minni en fjár­fest­ingar í íslenska hag­kerf­inu.

„Þess vegna er ekki alveg sann­gjarnt að halda því fram að þetta snú­ist fyrst og fremst um íslensku krón­una. Við verðum engu að síður að taka það með í reikn­ing­inn að það getur haft áhrif á gjald­eyr­is­jöfnuð í land­inu ef svona stórar fjár­hæðir eru undir. Góðu frétt­irnar eru þær að fyrir nokkrum árum komst íslenska þjóð­ar­búið í fyrsta sinn í jákvæða stöðu gagn­vart útlöndum, eftir stöð­ug­leika­fram­lögin, og sú staða hefur bara vaxið í milli­tíð­inni. Þannig að við getum farið í þessa umræðu af miklu sjálfs­trausti. Staða okkar gagn­vart umheim­inum hefur bara styrkst. Þá stöðu höfum við byggt upp á grund­velli og með stuðn­ingi við okkar eigin gjald­miðil.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár