„Aðför að lýðræðinu“ – Vill að þingmannamál fái meiri athygli

Þing­maður Pírata skorar á for­menn þing­flokka og for­seta Alþingis að finna leið til þess að þing­manna­mál fái meiri athygli og góðar hug­myndir nái fram jafn­vel þó að þær komi ekki frá „lög­fræð­ingum ráðu­neyt­anna“.

Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata.
Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata skorar á for­menn þing­flokk­anna og Birgi Ármanns­son for­seta Alþingis að finna leið til þess að lýð­ræðið fái að njóta sín – að þau mál sem þing­menn leggja fram fái meiri athygli og góðar hug­myndir nái fram jafn­vel þó að þær komi ekki frá „lög­fræð­ingum ráðu­neyt­anna“.

Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en samið hefur verið um þing­lok í þess­ari viku.

„Hér komum við saman á næst­síð­asta degi þessa lög­gjaf­ar­þings. Næstu tvo sól­ar­hringa munum við sam­þykkja á færi­bandi frum­vörp og þings­á­lykt­un­ar­til­lögur sem samið hefur verið um að klára fyrir þing­lok. Næstum öll eiga þessi þing­mál það sam­eig­in­legt að þau eru stjórn­ar­mál, skrifuð af ráðu­neytum. Einungis fjögur mál skrifuð af þing­mönnum, svokölluð þing­manna­mál, hafa hlotið þá náð að fá umfjöllun og afgreiðslu úr nefnd,“ sagði hann.

Skiptir engu hversu góð málin eru – þau fá ekki afgreiðslu

Þá benti Gísli Rafn á að þessi fjögur mál með fram­sögu­mönnum frá fjórum mis­mun­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkum myndu fá afgreiðslu úr nefnd sem hluti af þing­loka­samn­ingum.

„Það er því miður þannig að und­an­farin ár hafa nær engin þing­manna­mál fengið afgreiðslu á þing­inu ef frá eru talin þau örfáu mál sem eru hluti af þing­loka­samn­ingum á hverju ári. Skiptir þá engu hversu góð málin eru eða hversu margir þing­menn eru með­flutn­ings­menn á mál­inu,“ sagði hann og bætti því við að þessi þróun væri aðför að lýð­ræð­inu.

Mörg þing­manna­mál yrðu þannig til að kjós­andi eða kjós­endur hefðu sam­band við þing­menn og bentu þeim á brotala­mir í kerf­inu. Hann nefndi sem dæmi þing­mál Hildar Sverr­is­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um tækni­frjóvgun, sem hann og þing­menn úr flestum flokkum væru með­flutn­ings­menn á.

„Þar er verið að upp­færa lög sem voru skrifuð á öðrum tímum þegar ein­ungis konum, giftum karl­mönnum, var leyft að nýta sér þessa tækni. En jafn­vel þó að þarna sé um mik­il­vægar rétt­ar­bætur að ræða, jafn­vel þótt þarna sé breiður hópur þing­manna úr öllum flokkum á bak við frum­varpið, þá er það eitt af hinum mörgu málum sem enda í graf­reit góðra hug­mynda nú við þing­lok. Eina von okkar þing­manna sem lagt hefur fram 104 þing­manna­frum­vörp og 128 þings­á­lykt­un­ar­til­lögur er að eitt­hvað af því sem við leggjum fram sé pikkað upp af ráðu­neytum og nýtt seinna,“ sagði hann og skor­aði í lokin á for­menn þing­flokk­anna og for­seta Alþingis að finna leið til þess að lýð­ræðið fengi að njóta sín.

Meirihlutinn ræður öllu

Björn Leví Gunn­ars­son kollegi Gísla Rafns í Pírötum fjall­aði einnig um störf þings­ins undir sama lið í dag.

„Þetta er vænt­an­lega síð­asta skiptið í bili sem þessi dag­skrár­liður, störf þings­ins, er á dag­skrá. Ég vildi því kannski aðeins tala um störf þings­ins. Ég heyri oft sagt: „Af hverju virkar þingið eins og það gerir? Af hverju er ekki hægt að gera hlut­ina aðeins öðru­vísi, svona eða hinsegin?“ Það er dálítið áhuga­vert svar við því,“ sagði hann.

Björn Leví útskýrði það þannig að stjórn­ar­fyr­ir­komu­lagið á Alþingi væri með þeim hætti að meiri­hlut­inn réði öllu. „Allar spurn­ingar um það hvernig hægt er að gera hlut­ina öðru­vísi bein­ast því að meiri hlut­anum. Allt sem stjórn­ar­and­staðan gerir eru við­brögð við því sem meiri­hlut­inn gerir. Frum­kvæðið getur aldrei verið hjá stjórn­ar­and­stöð­unni, það virkar ekki þannig af því að meiri­hlut­inn ræður öllu. Það þýðir ýmis­legt. Meiri­hlut­inn segir kannski: „Nei, við ætlum bara að gera þetta svona hvað sem tautar og raular og sama hvaða rök eru í mál­inu.“ Þá er það bara einn staður sem stjórn­ar­and­staðan getur mætt á til að segja hlut­ina eins og þeir eru, stundum undir rós eða eitt­hvað álíka, og það er í þennan ræðu­stól.

Þetta er eina tæki stjórn­ar­and­stöð­unnar til að reyna að hafa ein­hver áhrif á stjórn­ar­meiri­hlut­ann og reyna að ná til þeirra í eitt­hvert sam­tal þegar ekk­ert sam­tal er í boði. Stundum er það þannig að það er ein­fald­lega verið að láta stjórn­ar­and­stöð­una svitna, það er ein­hver trega­gangur í samn­inga­við­ræðum. Þá er það bara útkljáð í því hversu lengi stjórn­ar­and­staðan þolir að tala í ein­hverju máli. Það þarf ekki að tengj­ast því máli sem verið er að ræða um. Það er bara ein­fald­lega svona: „Hér er patt­staða og hún er leyst með því að ein­hver fer upp í ræðu­stól þangað til patt­staðan leys­ist“,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Hann sagði jafn­framt í lok ræðu sinnar að það væri merki­legt að átta sig á því hvað þetta þýddi í heild­ar­sam­heng­inu. „Það er, held ég, eitt­hvað sem við ættum að skoða aðeins betur, að hafa fleiri úrræði til þess að útkljá samn­inga en bara það að ræðu­stóll Alþingis sé flösku­háls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár