Takk fyrir mig
Það er síðasti dagurinn í prófkjöri svo það er tími til að þakka þeim sem tóku þátt.
Ég vil þakka hinum frambjóðendunum 104 fyrir málefnalegar samræður. Slagsmál eru léleg myndlíking fyrir svona jákvætt prófkjör, en við skulum samt orða það svona: hér var slagur hugmynda en ekki persóna.
Ég þakka sérstaklega þeim sem vöktu okkur til umhugsunar um stjórnarskrána, og möguleikunum sem felast í nýrri. Maður lærði margt af því að lesa það sem aðrir frambjóðendur skrifuðu.
Svo má þakka þeim sem minntu okkur á uppruna Pírata. Baráttan fyrir bættum höfundarréttarlögum er alþjóðleg, heimurinn er búinn að breytast og er að breytast, en lagaumhverfið þarf að fylgja með. Núna eru ótal lobbýistar víða um heim, eins og býflugur iðandi í kringum hunangsbúin í Washington og Brussel. Við getum haft áhrif á það sem gerist í Brussel, ekki mikil, en stundum veltir lítil þúfa þungu hlassi. Mikilvægast er að koma í veg fyrir afturfarir í þessum málum, að aukin tækni eins og þrívíddarprentun leiði ekki til enn strangari höfundarréttarlaga hvað varðar húsgagna og fatahönnun. Og koma í veg fyrir að réttur okkar til einkalífs verði skertur af þeim sem misskilja internetið og halda að bara af því upplýsingar séu stafrænar þá megi opna bréf sent milli tveggja einstaklinga.
Ég þakka Brynjari Níelssyni og Össuri Skarphéðinssyni fyrir að pota í okkur aðeins meðan prófkjörið átti sér stað. Bestu svörin við svona poti byggja oftast á hárbeittum húmor og góðu jafnaðargeði, en ef þetta er það sniðugasta sem andstæðingum Pírata dettur í hug þá er framundan þægileg kosningabarátta. Píratar bera ekki ábyrgð á kommentakerfum landsins, en ef einhver vill skal ég stofna Samfylkingarspjall þar sem menn geta rætt saman um málefni dagsins og ritskoðað það sem ekki smellpassar við flokkslínuna. Mæli þó ekki með því, þar sem slík stefna myndi leiða til frekar geldrar umræðu.
Svo þakka ég Þórgný Thoroddsen, Sigríði Bylgju og Bjarna Rúnari Einarssyni, (og öllum öðrum sem stússast hafa í umgjörð prófkjörsins). Fyrst og fremst er framkvæmdin búin að vera sanngjörn. Það er algjör snilld að hafa svona rúman tíma (heila 10 daga) til að raða upp frambjóðendum, færa upp og niður. Kosningaprófið hjá Gunnari Grímssyni, Bjarna Rúnari (aftur) og Árna Steingrími Sigurðssyni var líka kærkomin viðbót. Það er ekki upphaf og endir alls, þótt spurningarnar væru góðar, en skemmtileg leið til að fá mann til að hugsa um frambjóðendur sem maður þekkti ekki.
Loks þakka ég Pírötum fyrir að hafa tekið mér vel. Hlustað á mig, lesið ruglið í mér. Ég hlakka til að taka þátt í kosningabaráttunni hvar svo sem ég lendi á lista, uppi eða niðri eða hvergi, samt verð ég hér að skrifa pistla til að útskýra stefnumál eða niðri í kosningamiðstöð til í að spjalla við gesti og gangandi við hliðina á kaffivélinni.
Takk fyrir mig. Og í þessum töluðu orðum er ég að finna fjólubláu skyrtuna mína og stefna niður í Tortuga að heilsa upp á fólkið. Fjörið hefst klukkan fimm, kjósið ef þið getið (þið hafið rúma klukkustund og hálfa)
;)
Athugasemdir