Sundlaug úti á Granda?

Ég er í framboði svo ég ætti að sjálfsögðu að hæðast að Hörpufundinum og tala um hvað allt er glatað hjá stjórninni en ég er ekki alveg að nenna því núna. Auðvitað væri samt gaman að búa á landi þar sem fólk gæti bæði sparað til elliárana og haft húsaskjól en ...
ég var í Helsinki um daginn og þar sá ég margt flott. M.a. þetta almennings gufubað. (Sem því miður hafði lokað þegar við komum þangað 10 um kvöld).
Löyly saunan er í hverfi sem er með nokkrum hipp og kúl börum, nokkrum vöruhúsum, plássi sem festivöl nota. M.ö.o. á svæði þar sem einu sinni var mikill iðnaður og er enn smá (eins og sést á þessari mynd) en er núna að verða fínt hverfi. Þó nokkuð margar blokkir með stórum penthouse íbúðum voru í nágrenni við þetta gufubað/veitingastað.
Þetta svæði minnti mig á meatpacking district í New York eða Kødbyen í Kaupmannahöfn, en líka á Granda.
Upp úr kviknaði þessi pæling. Væri ekki svolítið töff að hafa sundlaug úti á Granda, sundlaug með alls kyns gufuböðum, þaki með útsýni upp á þar sem hægt væri að fara á barinn eða jafnvel veitingastað. (Er ekki að segja að sundlaugin og barinn eigi að tengjast, það mætti t.d. leigja út hluta byggingarinnar).
Það er allavega ekki vanþörf á nýjum sundlaugum. Laugardalslaugin er búinn að sprengja sig, og þess vegna ímynda ég mér að svona laug yrði kærkomin viðbót því hún myndi draga til sín fullt af túristum út á hipp og kúl Granda.
Þetta er augljóslega ekki kosningaloforð. Bara pæling.
Önnur pæling sem mér finnst nokkuð góð er að byggja sundlaug einhvers staðar nærri Hörpu. Egill Helgason, sjónvarpsmaðurinn og bloggarinn, hefur skrifað nokkrum sinnum um þá pælingu og mér finnst hún býsna góð. Að geta verið í sundi og notið útsýnisins af Hörpu og hafnarsvæðisins.
Nú veit ég að fjármál borgarinnar eru viðkvæm, og kannski er það tóm della í mér að ímynda mér að það myndi borga sig til baka í aðsókn túrista. En pælingin er góð. Á hafnarsvæðinu voru Finnar farnir að byggja utandyra sundlaug, sem ég held reyndar að gangi ekki upp af veðurfarslegum ástæðum á Íslandi (ekki alveg ofan í hafinu) en ætla mér svo sannarlega að prufa næst þegar ég er í Helsinki.
Eða hvað finnst ykkur?
Athugasemdir