Það er ekki sama hjarta og hjarta
Ef það amar eitthvað að nefi, eyra eða háls, þá eru háls, nef og eyrnalæknar hluti af sjúkratryggingakerfinu.
Ef það amar eitthvað að augum, þá eru augnlæknar hluti af sjúkratryggingakerfinu.
En ef þú hefur tannskemmdir þá skyndilega ertu kominn að mörkum sjúkratryggingakerfisins.
Spes.
Það er mjög spes að gera greinarmun á ungri manneskju sem sökum lágs dópamínflæðis í heila gerir tilraun til að binda endi á ævi sína, og manneskju sem á sextugs aldri er með kransæðastíflu eða hjartavandamál.
Báðum er illt í hjartanu af mismunandi ástæðum. Bæði þurfa hjálp. Það skilja allir með lágmarks-samkennd. Af því sextuga hjartveika manneskjan á skilið að kynnast barnabörnum sínum og unglingurinn í sjálfsmorðshugleiðingum er barnabarn einhvers. Sálfræðingar eru líka nokkurs konar hjartalæknar.
Svo mér þykir spes að fólk geri það að umtalsatriði að vilja færa sálfræðiaðstoð undir sjúkratryggingar.
Mjög spes.
En að lokum bara þetta. Það virðist vera sama hvaða glansmynd góði Bjarni setur upp á tyllidögum, alltaf er einhver Brynjar Níelsson í skugganum sem opinberar það sem Sjálfstæðismönnum raunverulega finnst. Þessi flokkur á í allsérstöku sambandi við þjóðina, en við þjóðina vil ég bara segja þetta:
Elskan, honum er alveg sama um þig.
Og einhvern veginn grunar mig að jafnvel þúsund niðurgreiddir sálfræðitímar myndu ekki laga hjartagallann í kjarna Sjálfstæðisflokksins.
E.S. Á norðurlöndunum eru tannréttingar í boði fyrir alla grunnskólakrakka. Kannski af því að óháð því hvort faðir þinn er lögfræðingur á þingi eða lögregla út á landi þá verðskulda allir fallegt bros.
Athugasemdir