Ragnar gefur Kviku frest til að „rifta“ kaupunum

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stjórn félagsins standa þétt saman og hún sætti sig ekki við það hvernig Almenna leigu­félagið starfar.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að Kvika banki hafi nú frest til að rifta kaupum sínum á GAMMA, sem rekur Almenna leigu­félagið.

Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá Ragnari Þór á Facebook síðu hans.

„VR er frjálst að færa sína sjóði og kostar það félagið ekki neitt. Ef rétt reynist að Kvika banki hefur ekkert með ákvarðanir Gamma/Almenna að gera, sem ég reyndar efast stórlega um, hefur bankinn sama frest til að rifta fyrir­huguðum kaupum á fyrirtæki sem svífst einskis þegar kemur að siðlausum gróða­sjónarmiðum gagnvart almenningi. Stjórn VR stendur fast á sínu. Við höfum nú þegar gert ráðstafanir um það hvert fjármunir félagsins verða fluttir, komi til þess, og mun það ekki hafa nokkur áhrif á ávöxtun fjármuna félagsins sé tillit tekið til árangurs bankans síðustu ár,“ segir Ragnar Þór. 

Í opnu bréf á vef VR, sem birt var fyrr í dag, er Kviku gefinn kostur á að bregðast við hegðun Almenna leigu­félagsins, sem komi fram við leigjendur af „grimmd“. Sjóðir VR í stýringu, 4,2 milljarðar króna, verði færðir út stýringu ef bankinn myndi ekki bregðast við hátterni Almenna leigu­félagsins.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, sagði í samtali við Kjarnann að Kvika kæmi ekkert að ákvörðunum GAMMA enda væri bankinn ekki búinn að eignast félagið, og mætti ekki koma að starfsemi félagsins. „Við von­umst auð­vitað eftir því að SKE sam­þykki kaupin en það geta liðið vikur eða mán­uðir þar til það ger­ist.Þar til kaupin ganga í gegn höfum við ekk­ert með stjórn GAMMA að gera og er óheim­ilt að reyna að hafa ein­hver áhrif á rekstur félags­ins og sjóða­stýr­ingu þess,“ sagði Ármann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár