ECCO í mótvindi

Danski skófram­leið­and­inn ECCO sætir nú mik­illi gagn­rýni en fyr­ir­tækið hyggst ekki loka versl­unum sínum í Rúss­landi. Fjöl­margir skó­salar víða um heim hafa stöðvað við­skipti sín við ECCO.

Ecco rekur 250 skóverslanir í Rússlandi en fyrirtækið hyggst ekki loka verslunum sínum þar í landi nema ef sala dregst saman um tugi prósenta.
Ecco rekur 250 skó­versl­anir í Rúss­landi en fyr­ir­tækið hyggst ekki loka versl­unum sínum þar í landi nema ef sala dregst saman um tugi pró­senta. Mynd: Facebook/Ecco

Kannski kann­ast ekki margir við nafnið Karl-Heinz Werner Toosbuy. Karl-Heinz var fæddur í Holte, norðan við Kaup­manna­höfn árið 1928. Hann lærði skó­smíði hjá Hertz sút­unar- og skó­verk­smiðj­unni í Kaup­manna­höfn en með­fram nám­inu þar lærði hann hönnun í kvöld­skóla. Eftir að nám­inu í skó­smíð­inni lauk réðst Karl-Heinz til fyr­ir­tæk­is­ins Tretorn á Hels­ingja­eyri og þaðan lá leiðin til Nordsko fyr­ir­tæk­is­ins í Ballerup.

Draum­ur­inn var þó að verða sjálf­stæður skófram­leið­andi og árið 1963 flutti Karl-Heinz ásamt eig­in­kon­unni Birte og dótt­ur­inni Hanne til Suður-Jótlands. Karl-Heinz hafði aug­lýst eftir hús­næði undir litla skó­verk­smiðju í nokkrum svæð­is­blöðum á Jótlandi og gat þess í aug­lýs­ing­unni að hann hygð­ist fljót­lega ráða 20-40 starfs­menn. Hann fékk nokkur svör við aug­lýs­ing­unni en leist best á hús­næði í smá­bænum Bredebro, skammt frá landa­mær­unum að Þýska­landi. Karl-Heinz, sem var bæði bjart­sýnn og stór­huga, gerði sér grein fyrir að miklu skipti að skórnir sem hann ætl­aði sér að fram­leiða bæru ein­falt nafn. Eftir miklar vanga­veltur ákvað Karl-Heinz að skórnir skyldi heita ECCO. Löngu síðar sagði hann í við­tali að sér þætti þetta ítalska orð ECCO (sem þýðir sjáðu, eða sko) auð­skilið og alþjóð­legt.

Eins og áður var nefnt hafði Karl-Heinz lært hönnun með­fram skó­smíða­nám­inu. Hönnun ECCO skónna fór í fyrstu fram við „eld­hús­borðið heima“ eins og Karl-Heinz komst að orði.

Hann taldi sig vita að fram­leiðslu­kostn­að­ur­inn yrði alltof mik­ill ef skórnir yrðu fram­leiddir í Danmörku. Hann leit­aði þess vegna til Indónesíu og Tælands með fram­leiðsl­una á yfir­leðr­inu en botn­ana lét hann fram­leiða í Portúgal, þar sem skórnir voru jafn­framt settir saman.

Fyrst auglýstir sem ódýrir hversdagsskór

Þótt Karl-Heinz hafi frá upp­hafi ætlað sér að fram­leiða gæða­skótau vissi hann að ekki væri auð­velt að kom­ast inn á mark­að­inn. Rétta leiðin væri að kynna skóna sem ódýra hvers­dags­skó, síðan myndu skórnir sjálfir sjá um að aug­lýsa sig og þá tækju ,„betri“ skó­búðir við sér.

Þetta reynd­ist rétt. ECCO skórnir náðu fljótt vin­sældum og óhætt er að full­yrða að ECCO sé meðal þekkt­ustu vöru­merkja á sínu sviði og er nú í hópi stærstu skófram­leið­enda heims, með um 22 þús­und starfs­menn í mörgum löndum. ECCO sér­versl­anir um víða ver­öld skipta þús­undum, en auk þess eru sér­stakar ,„ECCO deildir“ í tug­þús­undum versl­ana víða um heim. Fram­leiðslan fer fram í Slóvakíu, Portúgal, Tælandi, Indónesíu og Kína. Verk­smiðj­urnar eru nær allar í eigu ECCO sem á einnig sút­un­ar­verk­stæði í Hollandi, Indónesíu, Tælandi og Kína.

Skór fyrir alla, við öll tækifæri

Karl-Heinz lagði frá upp­hafi áherslu á að fram­leiða skó sem væru í senn þægi­legir og end­ing­ar­góðir. Úrvalið jókst smám saman og óhætt er að segja að þar sé eitt­hvað fyrir alla, börn og full­orðna: spari­skór, götu­skór, göngu­skór, íþrótta­skór og inni­skór svo eitt­hvað sé nefnt. Auk þess fram­leiðir ECCO ýmis konar vörur úr leðri, til dæmis belti og töskur.

Höf­uð­stöðvar ECCO eru enn í smá­bænum Bredebro (íbú­arnir um 1.500) og þar er stærsta ECCO skó­verslun í heimi. Íbúa­fjöld­inn í Bredebro dugir ekki til að halda uppi við­skiptum í slíkri stór­verslun en við­skipta­vin­irnir koma víða að, ekki síst frá Þýska­landi. Karl-Heinz lést árið 2004 en dóttirin Hanne (fædd 1957) tók þá við rekstri fyr­ir­tæk­is­ins.

Kongelig hofleverandør

Um það bil eitt­hund­rað dönsk fyr­ir­tæki hafa leyfi til að merkja vörur sínar, bréfs­efni o.fl með dönsku kór­ón­unni og text­anum ,„kong­elig hof­lever­andør“, sem segir að við­kom­andi fyr­ir­tæki hafi ann­ast til­tekin verk­efni eða fram­leiði vöru sem fjöl­skyldan á Amali­en­borg kaupi.

Listinn er fjöl­breyttur, mat­væla­fram­leið­endur, hús­gagna-og skart­gripa­fyr­ir­tæki, brugg­hús svo fátt eitt sé nefnt. Fyr­ir­tæki sem hafa, um ára­bil, átt við­skipti við kon­ungs­fjöl­skyld­una geta sótt um útnefn­ing­una, sam­þykki fjöl­skyldan beiðn­ina gildir útnefn­ingin í fimm ár. ECCO er á þessum lista sem þýðir að í skó­skápum Dana­drottn­ingar og fjöl­skyld­unnar er að finna skó frá ECCO.

Karl-Heinz og ECCO fyr­ir­tæk­inu hefur hlotn­ast ýmis konar annar heiður, og í til­efni af 50 ára afmæli ECCO árið 2013 var stóru torgi í miðbæ Bredebro gefið nafnið Toosbuys Torv. Skóbúðin sem áður var getið stendur við torgið.

Rússland

Á síð­ustu árum hefur ECCO lagt aukna áherslu á ný mark­aðs­svæði. Þar á meðal Rússland. Árið 2020 lagði fyr­ir­tækið mikla fjár­muni í upp­bygg­ingu eigin versl­ana þar í landi, en fram til þess tíma hafði rekstur ECCO búð­anna verið í ann­arra höndum. Samtals eru versl­anir ECCO í Rúss­landi 250 tals­ins, sumar mjög stórar aðrar litlar. Fjölmörg fyr­ir­tæki hafa hætt, í bili að minnsta kosti, öllum við­skiptum við Rússland. ECCO hefur ekki verið í hópi þeirra fyr­ir­tækja sem snúið hafa baki við Rússum. Þetta hefur vakið hörð við­brögð í Danmörku og víðar. Stór versl­ana­fyr­ir­tæki hafa hætt öllum við­skiptum við ECCO og tekið vörur fyr­ir­tæk­is­ins úr hillum, önnur hafa ákveðið að stöðva frek­ari inn­kaup á vörum frá ECCO.

For­svars­menn ECCO hafa í við­tölum sagt að fyr­ir­tækið ætli ekki að loka versl­unum sínum í Rúss­landi. ,,Við höfum skyldur gagn­vart starfs­fólki okkar í Rúss­landi og við ætlum ekki að bregð­ast þeim,“ sagði tals­maður ECCO í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske.

Við­skipta­rit­stjóri Berl­ingske sagði í pistli í blað­inu að þrátt fyrir þessa yfir­lýs­ingu gæti svo farið að stjórn­endur ECCO snúi við blað­inu og loki í Rúss­landi. ,,Ef sala á vörum fyr­ir­tæk­is­ins dregst saman, kannski um tugi pró­senta, er lík­legt að stjórn­endur ECCO breyti um kúrs. Við­skipta­hags­mun­irnir vegi þá þyngra en hags­munir starfs­fólks­ins í Rúss­landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár