Átakshópur um bætta stöðu á húsnæðismarkaði

Stjórn­völd og heild­ar­sam­tök á vinnu­mark­aði hafa sett á fót átaks­hóp um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði. Átaks­hóp­ur­inn skal kynna heild­stæða lausn á við­fangs­efnum sínum í jan­úar á næsta ári.

Stjórn­völd og heild­ar­sam­tök á vinnu­mark­aði hafa stofnað átaks­hóp til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði, verk­efni hóps­ins snúa að því að auka fram­boð á íbúðum og að öðrum aðgerðum með það að mark­miði að bæta hús­næð­is­stöð­una hér á landi. Stjórn­völd og aðilar vinnu­mark­aðs­ins komu saman á tólfta sam­ráðs­fund sínum síð­asta föstu­dag. For­sæt­is­ráð­herra, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynntu þessa sam­eig­in­lega til­lögu á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Kynna heildstæða lausn í janúar

Í til­kynn­ingu Stjórna­ráðs­ins segir að hóp­ur­inn eigi að hafa sam­ráð við aðra starfs­hópa um hús­næð­is­mál og að hópnum sé skylt að kynna heild­stæða lausn á við­fangs­efnum sínum fyrir stjórn­völdum og heild­ar­sam­tökum á vinnu­mark­aði eigi síðar en 20. jan­úar 2019. Íbúða­lána­sjóður mun vinna með hópnum ásamt öðrum sér­fræð­ingum.

„Nú er mik­il­vægt að við tökum höndum saman og finnum raun­hæfar lausnir og aðgerðir sem geta haft áhrif sem allra fyrst. Í mínum huga er mik­il­væg­ast að við göngum nú öll í takt og finnum úrræði sem gagn­ast sem allra flestum en ljóst er að öruggt hús­næði er einn af grund­vall­ar­þáttum í því vel­ferð­ar­sam­fé­lagi sem við viljum byggja upp hér á landi. Enda þótt hóp­ur­inn sé átaks­hópur þá vona ég að þær til­lögur sem hóp­ur­inn skilar muni ekki aðeins leysa stöð­una til skemmri tíma heldur einnig hafa áhrif á fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag hús­næð­is­mála hér á landi“, sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Þörf á 9.500 fleiri íbúðum

Á árunum 2013-2017 fjölg­aði íbúðum hér á landi um 6.500 en að mati Íbúða­lána­sjóðs hefði íbúðum þurft að fjölga mun meira, eða um hátt í 16.000 til þess að mæta að fullu þeirri þörf fyrir íbúðir sem skap­að­ist á tíma­bil­inu vegna fólks­fjölg­unar, breyt­inga á ald­urs­sam­setn­ingu og fjölg­unar íbúða í skamm­tíma­leigu.

Í til­kynn­ingu Stjórna­ráðs­ins segir að upp­safn­aður skortur á íbúðum end­ur­spegl­ast í miklum verð­hækk­unum á íbúða- og leigu­mark­aði og bráðum vanda þeirra sem standa höllum fæti á hús­næð­is­mark­aði segir í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins. Því þarf að fjölga íbúðum næstu árum til að vinna á þeim vanda og í sam­kvæmt til­kynn­ing­unni er mik­il­vægt að sú upp­bygg­ing verði í sam­ræmi við þarfir lands­manna.

Formenn hóps­ins verða Anna Guðmunda Ingv­ars­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Íbúða­lána­sjóðs, og Gísli Gíslason, hafn­ar­stjóri Faxa­flóa­hafna. Mun Anna Guðmunda Ingv­ars­dóttir taka sér leyfi frá störfum og sinna þessu verk­efni af fullum þunga. Auk þeirra verða í nefnd­inni þrír full­trúar frá ríki, tveir frá sveit­ar­fé­lögum og þrír frá heild­ar­sam­tökum á vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár