Tekur fimmtíu fleiri mánuði að borga íbúð í dag en fyrir fjórum árum

Íbúða­verð hefur hækkað umfram ráð­stöf­un­ar­tekjur á síð­ustu árum og því tekur það íbúa á aldr­inum 30 til 34 ára ríf­lega tvö­falt fleiri mán­uði að greiða fyrir íbúð í fjöl­býli í dag en það gerði árið 1997 eða um 192 mán­uði sam­kvæmt grein­ingu Capacent.

Íbúða­verð hefur hækkað umtals­vert umfram ráð­stöf­un­ar­tekjur á síð­ustu árum og því tekur það íbúa á aldr­inum 30 til 34 ára ríf­lega tvö­falt fleiri mán­uði að greiða með­al­verð fyrir 90 fer­metra íbúð í fjöl­býli í dag en það gerði árið 1997. Eig­in­fjár­hlut­fall almenn­ings hefur þó hækkað frá því það náði lág­marki árið 2010 og er nú hærra en það hefur verið í yfir tvo ára­tug­i. ­Sterk­ari eig­in­fjár­staða hefur bæði verið sótt í hærri ráð­stöf­un­ar­tekjur en ekki síður í hækkun fast­eigna­verðs sem hefur hækkað mikið umfram verð­lag. Frá þessu er greint í nýrri grein­ingu Capacent um stöðu og horfur á fast­eigna­mark­aði sem kynnt var í Ráð­hús­inu í morg­un.Tekur íbúa 192 mán­uði að greiða fyrir íbúð 

Íbúða­verð hefur hækkað umtals­vert umfram ráð­stöf­un­ar­tekjur og því tekur það íbúa á aldr­inum 30 til 34 ára ríf­lega tvö­falt fleiri mán­uði að greiða með­al­verð fyrir 90 fer­metra íbúð í fjöl­býli í dag en það gerði árið 1997, sam­kvæmt grein­ingu Capacent. Árið 1997 tók það 7 ár að borga íbúð en árið 2017 tekur það íbúa 16 ár eða 192 mán­uði að greiða fyrir íbúð. Frá árinu 2014 hefur talan hækkað um 52 mán­uði en það tók rúm 11 ár að greiða íbúð árið 2014.

Þörf á 4.000 íbúðum í borg­inni

Sam­kvæmt grein­ingunni vant­ar um 3.200 til 4.000 íbúðir á næstu árum til að full­nægja þörf fyr­ir nýj­ar íbúðir í borg­inni. Eins og staðan er í dag verða hins veg­ar aðeins byggðar um 1.350 íbúðir í borg­inni á næstu tveim­ur árum. Niður­stöðurn­ar eru meðal ann­ars byggðar á sam­an­b­urði á því hversu marg­ar íbúðir þarf til að hýsa íbúa 25 ára og eldri og því hversu marg­ar íbúðir eru nú í bygg­ingu.

Það ætti að vera nokkur hvati til að byggja fjölbýlishús í Reykjavík, þar sem kostnaður við byggingu þeirra er að jafnaði lægri en kaupverð þeirra, byggingarkostnaður sérbýla heldur á hinn bóginn áfram að vera hærri en kaupverð þeirra. Samkvæmt skýrslunni munu þó ný hótel og aukið eftirlit með Airbnb líklega draga úr þörf fyrir nýbyggingar.

Miðbæjarálagið minnkar

Miðbæjarálagið hefur minnkað á undanförnum tveimur árum. Kaupverð í miðbæ Reykjavíkur hefur hækkað hlutfallslega minna en kaupverð í öðrum hverfum. Stærstur hluti leigjenda er staðsettur í póstnúmeri 101 og 105 Reykjavík en þar eru líka flestar smærri íbúðirnar staðsettar.


Eiginfjárstaða Íslendinga styrkist

Eig­in­fjár­staða Íslend­inga hefur aldrei verið sterk­ari síðan mæl­ingar Hag­stof­unnar hófust. Sterkari eig­in­fjár­staða hefur bæði verið sótt í hærri ráð­stöf­un­ar­tekjur en ekki síður í hækkun fast­eigna­verðs sem hefur hækkað mikið umfram verð­lag sam­kvæmt grein­ingu Capacent. Eig­in­fjár­staða 25 til 29 ára hefur breyst mest í gegnum tíð­ina en eig­in­fjár­staða Íslend­inga yngri en 40 ára heldur aldrei verið betri. Engu að síður er um þriðj­ungur þeirra sem eru með tekjur lægri en 559 þús­und krónur í leigu­hús­næði.

Þá kemur fram í grein­ing­unni að tæp­lega 80 pró­sent Reyk­vík­inga 25 ára og eldri búa í eigin hús­næði, rúm­lega 16 pró­sent í leigu­hús­næði og um 4 pró­sent búa í for­eldra­húsum. Ef hins vegar er litið á búsetu­fyr­ir­komu­lag ein­stak­linga á aldr­inum 25 til 34 ára búa 56 pró­sent í eigin hús­næði, 29 pró­sent í leigu­hús­næði og 16 pró­sent í for­eldra­húsum.

Fyrstu kaup­endum íbúða fer fjölg­andi og voru þeir 26 pró­sent þeirra sem keyptu íbúðir í borg­inni á fyrri hluta árs 2018. Hlutfall fyrstu kaup­enda hefur verið nán­ast stöðugt hækk­andi frá árinu 2009 þegar 6 pró­sent íbúða voru keyptar af fyrstu kaup­endum en árið 2014 var þetta hlut­fall komið í 17 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár