Mynd: Pexels

Eigendur húsnæðis hafa hagnast um tvö þúsund milljarða en staða leigjenda versnar

Hús­næð­is­verð hefur hækkað næst mest í heim­inum á Íslandi á síð­ustu árum. Það hefur skilað eig­endum hús­næðis mik­illi verð­mæta­aukn­ingu. Á sama tíma hefur aldrei verið erf­ið­ara að kaupa fyrstu eign og flestir á leigu­mark­aði af illri nauð­syn frekar en vilja.

Áætlaðar eignir heim­ila eru um 7.400 millj­arðar króna og er um 78 pró­sent heild­ar­eigna heim­il­anna hús­næð­is­eignir. Því eiga lands­menn um 4.200 millj­arða króna sem bundið er í hús­næði. Eigið fé heim­ila hefur alls auk­ist um 2.051 millj­arð króna frá árinu 2010, eða um 96 pró­sent. Eigendur hús­næðis hafa því að með­al­tali aukið sam­eig­in­legan auð sinn um 256 millj­arða króna á hverju ári frá 2010.

Raunverð íbúða hefur alls hækkað um 56 pró­sent á tíma­bil­inu og er það næst mesta hækkun í heim­inum. Það hefur hækkað 1,5 sinnum meira hér­lendis en í Svíþjóð, 2,2 meira en í Noregi og rúm­lega fjór­falt meira en í Noregi.

Þegar búið er að draga frá verð­bætur og vaxta­gjöld þá nemur hrein verð­mæta­aukn­ing hús­næð­is­eig­enda 1.476 millj­örðum króna á tíma­bil­inu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri íbúða­mark­aðs­skýrslu Grein­ingar Íslands­banka sem birt var í dag.

Þar segir einnig að spár Íslands­banka geri ráð fyrir því að íbúða­verð muni alls hækka um 8,2 pró­sent í ár, um 5,5 pró­sent á næsta ári og 4,4 pró­sent á árinu 2020. Því ætti virði eigna þeirra sem eiga hús­næði að halda áfram í nán­ustu fram­tíð, en hægj­ast mun á því. Helstu ástæður þess eru, að mati Íslands­banka, hæg­ari kaup­mátt­ar­aukn­ing, minni fólks­fjölgun og áfram­hald­andi aukn­ing á fram­boði nýrra íbúða.

Tæplega átta af tíu lánum eru verðtryggð

Íslend­ingar taka mun frekar verð­tryggð lán en óverð­tryggð. Þannig eru 77 pró­sent heild­ar­skulda heim­ila lands­ins verð­tryggðar. Slík lán hafa verið hag­kvæm­asti kost­ur­inn sem boð­ist hefur íslenskum neyt­endum á und­an­förnum árum þar sem verð­bólga hefur að mestu verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miðum Seðla­banka Íslands frá febr­úar 2014. Síðustu miss­eri hefur hún þó skriðið yfir mark­miðið og stendur nú í 2,7 pró­sentum. Samhliða hafa láns­kjör batnað umtals­vert, þótt þau séu enn langt frá því að vera á pari við það sem er í boði hjá öðrum þjóðum sem Ísland ber sig saman við. Þannig eru vextir á ódýr­ustu verð­tryggðu lán­unum sem bera breyti­lega vexti nú 2,51 pró­sent og alls bjóða níu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sjóðs­fé­lögum sínum slík lán með vöxtum sem eru undir þremur pró­sentum.

Verð­tryggðir breyti­legir vextir hjá bönk­unum þremur eru hins vegar á bil­inu 3,65 til 3,98 pró­sent. Ódýr­astir hjá rík­is­bank­anum Lands­banka og dýr­astir hjá hinum rík­is­bank­anum, Íslands­banka.

Í grein­ing­unni segir að útlit sé fyrir vax­andi verð­bólgu næstu miss­erin auk þess sem veik­ing krón­unnar að und­an­förnu muni að óbreyttu skila sér í hærra verð­lagi inn­fluttra vara. Þess vegna telur Íslands­banki að verð­bólga verði 3,5 pró­sent á næsta ári og 3,2 pró­sent árið 2020.

Vextir og verðbætur renna að mestu aftur í ríkissjóð

Þar kemur einnig fram að lán­veit­endur fjár­magni um 1.500 millj­arða króna af hús­næð­is­eign lands­manna. Sé tekið til­lit til þess að þorri lán­veit­enda eru rík­is­bankar, líf­eyr­is­sjóðir og Íbúða­lána­sjóður, sem allt eru lán­veit­endur í eigu almenn­ings, er að lág­marki 95 pró­sent mark­að­ar­ins í beinni eða óbeinni eigu lands­manna en fimm pró­sent í eigu ann­arra lán­veit­enda, sem eru þá að mestu Arion banki.

Þá er greint frá því að banka­kerfið taki til sín um 52 pró­sent af vaxta- og verð­bóta­álögum heim­ila lands­ins. Restin, 48 pró­sent, fer til líf­eyr­is­sjóða og Íbúða­lána­sjóðs. „Að teknu til­liti til eign­ar­halds renna að lág­marki 83 pró­sent þess­ara fjár­muna aftur til lands­manna í gegnum rík­is­sjóð,“ segir í grein­ing­unni.

Aldrei erfiðara að kaupa fyrstu eign

Í grein­ing­unni segir að hlut­fall launa aðila á algengum aldri fyrir frystu kaup og verðs á smærri eignum hafi verið um 31 pró­sent yfir lang­tíma­með­al­tali síð­ast­liðin ár. Það hefur aldrei verið hærra, sem þýðir þá að aldrei hefur verið erf­ið­ara að kaupa fyrstu eign.

Það er áhyggju­efni fyrir þá sem eru fastir á leigu­mark­aði en vilja kom­ast í eigið hús­næði. Í grein­ingu Íslands­banka segir að 90 pró­sent leigj­enda telji að það sé óhag­stætt að vera á leigu­mark­aði og að yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem þar eru væri því heldur til í annað búsetu­form. Tölurnar bendi til þess „að leigu­hús­næði sé ill nauð­syn fremur en val­kostur.“

Þetta er und­ir­byggt með því að benda á að stað­virt með­alleigu­verð hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem flestir leigj­endur eru, hafi auk­ist um 37 pró­sent frá byrjun árs 2011 til októ­ber 2018. Á sama tíma hafi ráð­stöf­un­ar­tekjur algeng­asta hóps leigj­enda ein­ungis auk­ist um fjögur pró­sent. Því hafi dregið úr getu leigj­enda til að spara, og þar af leið­andi getu þeirra til að kaupa hús­næði.

Þótt staða leigj­enda sé ekki beysin þá er bent á það í grein­ing­unni að hlut­fall þeirra sem búi við íþyngj­andi leigu­kostnað hér­lendis sé 17 pró­sent hér­lendis en tvisvar sinnum hærra í Bret­landi, Noregi og Danmörku.

Langir biðlistar eftir félagslegum íbúðum

Þá er einnig fjallað um félags­lega íbúða­kerfið. Í lok árs 2016 voru um fimm þús­und slíkar á land­inu öllu og hafði þá ein­ungis fjölgað um 500 á níu árum. Um helm­ingur þeirra, 2.445 tals­ins, voru í Reykja­vík. Til sam­an­burðar má nefna að í Garðabæ eru 35 slík­­­­ar íbúð­ir, 30 í Mos­­­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­­­ar­­­nesi. f nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lögin fimm á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndu ætla að ná Reykja­vík í fram­boði á slíku þyrftu þau að fjölga félags­legu hús­næði um 1.080.

Í grein­ing­unni kemur fram að með­al­bið­tími eftir félags­legri íbúð er um 13 mán­uðir á land­inu öllu. Lengstur er bið­tím­inn í Hafn­ar­firði , 48 mán­uðir) og í Reykja­vík (36 mán­uðir). „Gefur þetta til kynna tals­verða umfram­eft­ir­spurn eftir félags­legu hús­næði sem umræddum sveit­ar­fé­lögum hefur ekki tek­ist að mæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár