Sveik 161 milljón króna út úr vogunarsjóði í gegnum síma

Óprúttinn aðili milli­færði 1.2 milljónir Bandaríkja­dala, eða rúma 161 milljón íslenskra króna, af banka­reikningum vogunar­sjóðsins Fortelus Management LLP, eftir að hann náði að plata fjármála­stjóra sjóðsins til að gefa sér upp öryggis­kóða í gegnum síma. Frétta­miðillinn Bloomberg greinir frá málinu.

Þjófurinn hringdi seint á föstudags­síðdegi í vogunar­sjóðinn, eða rétt fyrir lokun skrif­stofunnar, og kvaðst vera starfs­maður bankans Coutts, sem er viðskipta­banki sjóðsins. Hann fullyrti við fjármála­stjórann að grunnsamlegar milli­færslur hefðu átt sér stað á reikningum sjóðsins, og hann þyrfti öryggis­kóða þeirra til að aftur­kalla milli­færslurnar.

Fjármála­stjórinn notaði einhvers konar auðkennis­kort til að kalla fram öryggis­kóða sem hann lét svo síma­þjófinn hafa í góðri trú. Þegar hann mætti svo til vinnu á mánudags­morgun sá hann sér til mikillar skelfingar hvar hátt í 200 milljónir króna höfðu horfið af reikningum vogunar­sjóðsins. Þá var áðurnefnt símatal hvergi skrásett hjá Coutts bankanum. Fjármála­stjórinn hafði verið gabbaður.

Hann var síðar rekinn frá vogunar­sjóðnum sem hefur stefnt honum fyrir afglöp í starfi. Fjármála­stjórinn neitar ásökunum um vanræsklu og ítrekar að hann hafi veitt áður­nefndar upplýsingar í góðri trú og ekki í glæp­samlegum tilgangi.

Atvikið þykir sýna að jafnvel háþróuðustu öryggis­kerfi koma ekki í veg fyrir mannleg mistök og að fyrirtæki leggi ef til vill of mikla áherslu á að vera sem best tækjum búin frekar en að einbeita sér að því að þjálfa starfs­menn sína til að bregðast við tilraunum glæpa­manna.

Þá er víst alvanalegt að glæpamenn nýti sér föstudaga til að hringja í fjármála­fyrirtæki eða lögmanns­skrifstofur og reyni að villa á sér heimildir sem banka­starfsmenn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár