Kallaði Kristrúnu og Jóhann Pál krónprinsessu og jóker í spilastokki Samfylkingarinnar

Vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­bjóð­andi í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor hædd­ist að þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar á þingi í dag. Forseti Alþingis áminnti hann að gæta orða sinna.

Friðjón R. Friðjónsson
Friðjón R. Frið­jóns­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Friðjón R. Frið­jóns­son vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins beindi sjónum sínum að hús­næð­is­málum í Reykja­vík undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en hann gefur kost á sér í 2. sæti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor.

Rifjaði hann upp umræður um hús­næð­is­mál sem áttu sér stað á þing­inu þann 10. mars síð­ast­lið­inn.

„Fyrir nokkrum dögum var hér hressi­leg umræða um hús­næð­is­mál og höf­uð­borg­ar­svæðið, áhuga­verð að mörgu leyti. Til hennar var blásið af þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar. Þau komu hér hvert á fætur öðru og töl­uðu um tölur og um lóðir til vitnis um að allt væri í himna­lagi í höf­uð­borg­inni.

Stað­reyndin er hins vegar sú að Reykja­vík dregst aftur úr hvað varðar íbúa­fjölda ár eftir ár. Eitt sinn voru Reyk­vík­ingar 40 pró­sent þjóð­ar­innar en eftir nokk­urra ára valda­tíð R-list­ans byrj­aði hlut­fallið að lækka og hefur haldið áfram að lækka ár eftir ár,“ sagði hann.

Vísaði Friðjón í orð Kristrúnar Frosta­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem hún benti á að Reyk­vík­ingar væru ekki nema rétt rúm­lega þriðj­ungur þjóð­ar­innar.

„Stað­reyndin er sú að síð­ustu 20 ár hefur lands­mönnum fjölgað um 30 pró­sent, en Reyk­vík­ingum bara um 19 pró­sent. Á sama tíma hefur Kópa­vogs­búum fjölgað um rúm 60 pró­sent, Garð­bæ­ingum um 80 pró­sent og Hafn­firð­ingum um 50 pró­ent. Mos­fells­bær hefur tvö­fald­ast í íbúa­fjölda, 100 pró­sent fjölgun. Reykja­nes­bær og Árborg hafa vaxið um 80 pró­sent hvort og Hvera­gerði um 50 pró­sent, Akranes og Ölfus um 40 pró­sent.

Alls staðar í kringum höf­uð­borg­ina hefur íbúum fjölgað umfram lands­með­al­tal. Alls staðar nýta sveit­ar­fé­lögin tæki­færi til að upp­fylla óskir um ódýrar íbúðir og sér­býli, um að eiga garð og yrkja hann, öfugt við það sem ger­ist í Reykja­vík þar sem íbúar Voga­byggðar voru skyld­aðir til að rækta berja­runna þvert gegn vilja sínum,“ sagði hann.

Áminntur að gæta orða sinna

Lauk Friðjón máli sínu á því að þakka Kristrúnu Frosta­dóttur og Jóhanni Páli Jóhanns­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar „krón­prinsess­unni og jókernum í spila­stokki Sam­fylk­ing­ar­innar“ fyrir að draga athygli þings­ins að „hnign­andi stöðu höf­uð­borg­ar­innar“. Það myndi nýt­ast í sam­tal­inu um fram­tíð Reykja­víkur sem fram fer á næstu vikum.

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis áminnti þing­mann­inn að gæta orða sinna þegar vikið væri að öðrum þing­mönnum.

„Við reynum að vera málefnaleg“

Kristrún svar­aði þing­mann­inum undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta nokkru seinna og benti á að hún hefði ekki verið við­stödd í salnum þegar þessi ein­hliða orða­skipti hefðu átt sér stað.

„Nú vill svo til að hátt­virtur þing­maður sem lét þessi orð falla um mig og sam­flokks­mann minn, hátt­virtan þing­mann Jóhann Pál Jóhanns­son, er líka í fram­boði í Reykja­vík. Ég veit ekki hvort við­kom­andi þing­maður ætli sér að halda áfram ákveðnum sam­skipta­máta sem hefur kannski átt sér stað í borg­ar­stjórn­ar­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins en þannig eigum við ekki sam­skipti hér á þingi. Við reynum að vera mál­efna­leg. Við getum auð­vitað tek­ist á um ein­staka hluti. Hér var verið að tala um tölur sem voru teknar alger­lega úr sam­hengi en áttu bara mjög vel við í þeirri umræðu sem hér var.

Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég sem þátt­tak­andi í póli­tísku starfi hef orðið fyrir svona – hvað á að segja? – orða­lagi af hendi sam­flokks­manna hv. þing­manns þó að flestir hér inni, og allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi alltaf talað vel til mín,“ sagði hún.

Bauð Friðjóni að eiga orðastað við þau þar sem allir gætu svarað fyrir sig

Jóhann Páll svar­aði Friðjóni einnig undir sama lið og Kristrún og sagð­ist vilja bjóða Friðjón vel­kom­inn til starfa.

„Það er svo­lítið krútt­legt að fylgj­ast með þessum kosn­inga­skjálfta sem er hlaup­inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Það er bara gott og blessað. Ég vil líka bjóða honum að eiga hér orða­stað við okkur undir lið þar sem við getum svarað fyrir okkur og átt sam­skipti. Gangi honum bara vel í sínu,“ sagði Jóhann Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár