Vantraust hentar sumum stjórnmálamönnum

Van­traust á Alþingi mælist hátt á Íslandi, en slíkt van­traust getur hentað sumum stjórn­mála­mönnum að mati stjórn­mála­sál­fræð­ings.

Íslend­ingar treysta ekki stjórn­völdum en félags­legt traust helst hátt. Lítið er vitað hvað virkar í raun til þess að auka traust til stjórn­valda og van­traust hentar sumum stjórn­mála­mönnum. Þetta kom fram í máli Huldu Þór­is­dóttur, dós­ents í stjórn­mála­sál­fræði á mál­stofu á Degi stjórn­mála­fræð­innar þriðju­dag­inn síð­ast­lið­inn.

Í fyr­ir­lestri sínum benti Hulda á að traust almenn­ings á stjórn­völdum hafi raun­veru­leg áhrif á mögu­leika þeirra til að koma stefnu­málum sínum í fram­kvæmd. Samkvæmt tölum OECD hafi hrun orðið víða um heim í trausti til stjórn­valda eftir efna­hag­skrís­una 2008.

Hulda benti á að OECD hafi lagt fram til­lögur til þess að auka traust á stjórn­völdum. Mik­il­vægt sé að yfir­völd haldi siða­reglur í heiðri, sýni heið­ar­leika í fram­kvæmd til dæmis þegar kemur að stórum verk­efnum, stjórn­mála­menn leiði með góðu for­dæmi og tryggi að góðir stjórn­sýslu­hættir nái niður á öll stjórn­sýslu­stig.

Til þess að auka traust þurfi borg­arar að upp­lifa sann­girni ferla og vinnu­bragða, sann­gjarnar nið­ur­stöður og opið aðgengi að upp­lýs­ingum, að því er kom fram í máli Huldu.

Lítið vitað hvað virkar í raun

Hulda vís­aði til skýrslu starfs­hóps um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu sem birt­ist síð­ast­liðið haust. Samkvæmt nið­ur­stöðum hennar er skortur á heild­ar­stefnu stjórn­valda og slæg eft­ir­fylgni til­mæla aljþóð­legra stofn­ana.

Starfs­hóp­ur­inn lagði til úrbóta­til­lögur, til dæmis að stjórn­völdum væru settar siða­reglur, auk þess sem virkni þeirra og eft­ir­fylgd væru tryggð. Nauð­syn­legt væri að efla hags­muna­skrán­ingu stjórn­valda, betri rammi væri byggður um hags­muna­vörslu og upp­ljóstr­arar vernd­aðir.

Hulda sagði að lítið væri um emp­írískar rann­sóknir á því hvað virki í raun, það er að segja hvað geti raun­veru­lega eflt traust almenn­ings til stjórn­sýsl­unnar.

Félagslegt traust á Íslandi er hátt

Félags­legt traust, það er traust sem borg­arar bera til sam­borg­ara sinna, hafi ávallt mælst hátt á Íslandi og hagg­að­ist ekki við hrunið, að því er kom fram í máli Huldu.

Því var hrun í trausti til stjórn­valda, en ekki hrun í félags­legu trausti eftir efna­hag­skrís­una 2008. Hulda sagði það vera hálm­stráið sem hún grípi til þegar hún hugsi hvort hægt sé að auka traust til Alþingis.

Vantraust hentar sumum stjórnmálamönnum

Hulda sagði ýmsar ástæður geta legið að baki auknu van­trausti, til að mynda auknar kröfur almenn­ings, aukin menntun og að ekki væri sama virð­ing borin fyrir vald­inu og áður. Stjórn­mála­menn væru einnig ber­skjald­aðri en áður.

Hulda nefndi í pall­borði að van­traust geti hentað sumum stjórn­mála­mönnum, sér­stak­lega hægri popúl­ískum flokkum. Hún sagði suma stjórn­mála­menn nær­ast á van­trausti og jafn­vel ýta undir það.

„Það er vitað mál að mál­þóf eykur van­traust til þinga en það virð­ist ekki skipta máli. Það nærir þá ákvæðið fylgi, óánægju­fylgi, við þá sem eru óánægðir við ríkj­andi stjórn­kerfi,“ sagði Hulda.

Hulda sagði að í nið­ur­stöðum skýrslna OECD væri áber­andi að traust hafi hrunið gagn­vart þeim hluta yfir­valda sem lúti að stjórn­mála­mönnum. Það er að segja, traustið hrundi í þeim hluta sem hafi eins konar and­lit út á við sem hægt sé að tengja við ákveðna ein­stak­linga.

Hulda sagði að traust væri að stórum hluta „ímynd­ar­vandi“ sem er mögu­lega stuð­andi nið­ur­staða fyrir marga. Hún telji að stjórn­mála­menn og Alþingi þurfi að reyna að virkja mark­miða­drifna hugsun sér í hag og haga sér eins og þau eigi von á því að fólk treysti þeim, það er að reikna með því að þau séu trausts­ins verð, vilji þau auka traust til Alþingis. Vissu­lega verði það að vera í bland við reglur sem taki með skýrum hætti á þeim sem aug­ljós­lega fara yfir strikið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár