„Þessi ofbeldishrina er ekkert annað en skuggafaraldur“

Formaður Við­reisnar vill sér­stakan aðgerða­pakka til að koma í veg fyrir lang­tíma­af­leið­ingar lík­am­legs eða kyn­ferð­is­legs ofbeldis. Hún segir stöð­una grafal­var­lega – sem verði ekki hunsuð.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir að þing­menn verði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að verja frelsi kvenna til að þurfa ekki að búa við ofbeldi. Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Mér finnst við­eig­andi og raunar nauð­syn­legt að minn­ast á þá stað­reynd að í dag, 25. nóv­em­ber, er alþjóð­legur bar­áttu­dagur gegn kyn­bundnu ofbeldi. Dagurinn í dag er mik­il­væg áminn­ing þess að enn eigum við langt í land þegar kemur að því að upp­ræta það grafal­var­lega mein sem ofbeldi er í sam­fé­lagi okkar, hvað þá á heims­vísu.

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni verður þriðja hver kona fyrir lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi á ævi sinni um heim allan, oft­ast í nánum sam­böndum. Stað­reyndin er sú að í miðjum heims­far­aldri hafa fleiri til­kynn­ingar borist hér á landi um heim­il­is­of­beldi á þessu ári en á sama tíma síð­ustu þrjú árin. Síðustu þrjú ár, herra for­seti,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Grafalvarleg staða sem ekki verður hunsuð

Þá sagði þing­mað­ur­inn að UN Women hefðu bent á þá stað­reynd að margar konur og stúlkur um heim allan væru bundnar heima með ofbeld­is­mönnum sínum vegna sam­komu­tak­mark­ana og útgöngu­banna. Jafn­framt hefði fjár­magni verið stýrt frá úrræðum og stoð­þjón­ustu fyrir þolendur ofbeldis.

„Þetta er grafal­var­leg staða, virðu­legi for­seti, sem ekki verður hunsuð. Það er því miður svo að kyn­bundið ofbeldi er hrein og klár skugga­hlið af Covid-19. Þessi ofbeld­is­hrina er ekk­ert annað en skugga­far­aldur.

Lang­tíma­af­leið­ingar af slíku ástandi eru aug­ljósar og hljóta að eiga skilið mikla athygli af okkar hálfu hér á Alþingi. Það hlýtur að liggja bein­ast við að koma á sér­stökum aðgerða­pakka til að koma í veg fyrir lang­tíma­af­leið­ingar,“ sagði hún.

Enn fremur nefndi hún að á þing­inu væri mönnum iðu­lega tíð­rætt um frelsi. „Það hlýtur því að liggja beint við að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að verja frelsi kvenna til að þurfa ekki að búa við ofbeldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár