Vill afnema húsnæðisliðinn úr vísitölunni

Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að verð­trygg­ing sé ekki óklíf­an­legt fjall. „Við getum nefni­lega haft áhrif á gang mála. Það er nauð­syn­legt að end­ur­meta for­sendur og útreikn­inga verð­bólgu og verð­trygg­ingar,“ sagði hún að þingi í dag.

Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins.
Halla Signý Krist­jáns­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Verð­trygg­ing er mann­anna verk, ekki nátt­úru­leg þótt hún virð­ist haga sér þannig.“ Þannig hóf Halla Signý Krist­jáns­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins mál sitt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Halla Signý sagði að þegar verð­trygg­ing­unni var komið á hér á landi hefði verið um neyð­ar­á­stand að ræða.

„Það átti að tryggja sparifé lands­manna, lánsfé og laun. Vextir voru ekki frjálsir og vand­inn óx. En núna erum við á öðrum stað og á öðrum tíma. Verið er að gera því skóna að verð­bólgu­skotið núna sé stjórn­völdum að kenna. Það heyr­ist talað um óstjórn og ráða­leysi. Sam­fylk­ingin rýkur í fjöl­miðla með bundið fyrir augun án þess að líta til þess sem er að ger­ast í lönd­unum í kringum okkur, en kallar samt eftir aukn­ingu í rík­is­út­gjöldum,“ sagði hún.

Verðtryggingin ekki óklífanlegt fjall

Halla Signý sagði enn fremur að verð­trygg­ing væri ekki óklíf­an­legt fjall. „Við getum nefni­lega haft áhrif á gang mála. Það er nauð­syn­legt að end­ur­meta for­sendur og útreikn­inga verð­bólgu og verð­trygg­ingar.

Framsókn hefur ítrekað kallað eftir því að stjórn­völd beiti sér fyrir því að vísi­tala neyslu­verðs til verð­trygg­ingar verði hér eftir reiknuð án hús­næð­isliðar. Fast­eigna­verð er liður í neyslu­vísi­tölu hér á landi og af þeim sökum hafa stýri­vextir og höf­uð­stóll verð­tryggðra lána verið hærri en í nágranna­lönd­unum þar sem stuðst er við sam­ræmda vísi­tölu neyslu­verðs. Sá darrað­ar­dans sem hefur átt sér stað á hús­næð­is­mark­aði lands­manna hefur því miður skapað verð­bólgu og hún vex. Nágranna­lönd okkar nota aðrar for­sendur við útreikn­inga verð­bólgu og þar sem hús­næð­is­mark­að­ur­inn er lít­ill og auð­hreyfður verðum við í alvöru að skoða hvort ekki sé kom­inn tími til að horfa fram hjá honum.“

Að lokum sagði hún að nú þegar vorar yrði að líta til sólar. „Stjórn­völd hafa borið gæfu til að leggja fram efna­hags­legar mót­væg­is­að­gerðir til að minnka þau efna­hags­legu áhrif sem heims­far­ald­ur­inn hefur leitt af sér. Mót­væg­is­að­gerðir eru komnir á þriðja tug. Nú þurfum við að horfa enn frekar til fjöl­skyldna í land­inu. Afnemum hús­næð­islið­inn úr vísi­töl­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár