Mjótt á munum í Grikklandi - Ráðherra sker frekar af sér hendina en að kjósa „já“

Skoðana­kannanir í Grikk­landi benda til að afar mjótt sé á munum milli Já- og Nei-stuðnings­hreyfinga í þjóðar­atkvæða­greiðslunni sem haldinn verður næst­komandi sunnudag. Jafnvel þótt bæði staðan og samningar við kröfuhafa hafi breyst frá því Alexis Tsipras forsætis­ráðherra boðaði til atkvæða­greiðslunnar, þá munu Grikkir kjósa um hvort þeir vilji ganga að samkomu­lagi við kröfuhafa gríska ríkisins eftir þrjá daga. Í nýrri skoðana­könnun mælist stuðningur við samkomu­lagið 47 prósent. Um 43 prósent aðspurðra sögðust ætla að kjósa „nei“ og er stærstur hluti Nei-liða stuðnings­fólk Syriza, stjórn­málaflokks Tsipras. Vikmörk könnunarinnar eru 3,1 prósent og því erfitt að túlka með vissu hvor hreyfingin nýtur meiri stuðnings, þremur dögum fyrir atkvæða­greiðsluna. Báðar hafa boðað til mikilla mótmæla í dag.

Yanis Varoufakis, fjármála­ráðherra í grísku ríkis­stjórninni, var harðorður í viðtali við frétta­stofu Bloomberg í morgun og sagði hann myndi frekar skera af sér hendina heldur en að skrifa undir samkomulag við kröfuhafa sem gerir gríska ríkinu ókleift að endur­skipuleggja skulda­stöðuna. Hann sagðist myndu segja af sér ef gríska þjóðin kýs „Já“ í þjóðar­atkvæða­greiðslunni.


Mikið er undir á sunnu­daginn fyrir ríkis­stjórn Tsipras sem gæti fallið verði samþykkt samninga við kröfuhafa niður­staðan. Leiðtogar stærstu evru­ríkjanna og Evrópu­sambandsins hafa sagt með skýrum hætti að í raun kjósi Grikkir um áfram­haldandi veru í evru­samstarfinu. Vonir Varoufakis eru þó þær að Grikkir kjósi „nei“ og að Grikkland haldi evrunni áfram, að því er hann sagði í viðtalinu við Bloomberg.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lokaðir alla vikuna og geta Grikkir ekki tekið hærri fjárhæð en 60 evrur, ríflega átta þúsund krónur, úr hrað­bönkum á dag. Óvissa um fram­haldið hefur leitt til óvenjulegra aðstæðna í landinu, svo ekki sé meira sagt, þar sem langar biðraðir myndast við hraðbanka og bæði launþegar og atvinnu­rekendur vita ekkert um framhald mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár