Fimm ára bið eftir reglum um starfslokasamninga

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra gerði starfs­loka­samn­ing við for­mann kæru­nefndar útlend­inga­mála sem hugð­ist hætta. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur ekki sett reglu­gerð um slíka samn­inga síðan lög sem kveða á um slíkt voru sam­þykkt árið 2016.

Bjarni Benediktsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Bjarni Bene­dikts­son og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Fjár­mála­ráð­herra hefur ekki sett reglu­gerð um starfs­loka­samn­inga, en dóms­mála­ráð­herra hefur gert minnst tvo slíka samn­inga við emb­ætt­is­menn síð­ustu tvö ár. Mynd: Pressphotos

Reglu­gerð um starfs­loka­samn­inga, sem Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra ber að setja sam­kvæmt lögum sem tóku gildi árið 2016, hefur enn ekki verið sett. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra gerði í vor starfs­loka­samn­ing við Hjört Braga Sverr­is­son, frá­far­andi for­mann kæru­nefndar útlend­inga­mála, þrátt fyrir að hann hefði til­kynnt um yfir­vof­andi starfs­lok og að hann myndi biðj­ast lausnar.

„Umræddar reglur eru í vinnslu og er gert ráð fyrir að þær verði birtar á næst­unni,“ segir í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Í starfs­loka­samn­ingi Hjartar Braga, sem ráðu­neytið afhenti Stund­inni, kemur fram að hann fær full laun út febr­úar 2022, þrátt fyrir að hafa til­kynnt 15. apríl síð­ast­lið­inn að hann hefði þegið nýtt starf erlendis. Verði laun nýs for­manns kæru­nefndar útlend­inga­mála hækkuð á þessu tíma­bili munu laun og kjör Hjartar Braga einnig hækka. Samn­ing­ur­inn hljóðar þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár