Bretum í Túnis sagt að flýja landið vegna yfirvofandi hryðjuverka

Utan­ríkis­ráðuneyti Bretlands brýnir fyrir Bretum í Túnis að yfirgefa landið undir eins þar sem „mjög miklar líkur“ séu á að fleiri hryðjuverka­árásir séu yfir­vofandi. Frétta­miðillinn SkyNews greinir frá málinu.

Búið er að fjölga flug­ferðum frá landinu og tvær breskar ferða­skrifstofur stað­settar í Túnis hafa ákveðið að senda starfs­fólk sitt aftur til Bretlands.

Breska utan­ríkis­ráðuneytið segir að breskir ferðamenn eigi að yfirgefa landið nema þeir þurfi nauðsyn­lega að dvelja þar. Þá er brýnt fyrir fólki að ferðast alls ekki til Túnis nema bráð nayðsyn krefji.


Talið er að hátt í fjögur þúsund Bretar séu í sumar­leyfi í Túnis.


Þann 26. júní síð­ast­lið­inn voru 38 ferða­menn, þar af þrjá­tíu Bretar, drepnir af byssu­manni á bað­strönd og við hótel í Port El Kantanoui, skammt frá Sousse. Herská sam­tök súnníta í Sádi Arabíu, sem eru tengd Íslamska rík­inu, lýstu yfir ábyrgð á voða­verk­inu.

Í tilkynningu frá breska utan­ríkis­ráðuneytinu segir að vísbendingar um að fleiri hryðjuverka­árásir séu yfir­vofandi í Túnis. Það hafi rannsókn yfirvalda í landinu leitt í ljós og hættan hafi aukist hratt á síðustu dögum.

„Fleiri hryðjuverka­árásir eru mjög líklegar, meðal annars á ferðamanna­stöðum, af hálfu einstaklinga sem eru í sambandi við hryðjuverka­samtök í gegnum samfélags­miðla. Nú er mikilvægt að vera á varðbergi og fara að leið­beiningum yfirvalda í Túnis og ferða­skrif­stofunnar þinnar, ef þú ert á vegum slíkrar,“ sagði Phillip Hammond utan­ríkis­ráðherra Bretlands í sjónvarps­ávarpi í dag. „Eftir síðustu árás í Sousse hafa upplýsingar okkar gefið til kynna að myndin hafi versnað til muna, þannig að við teljum nú að líkur á fleiri hryðjuverka­árásum séu mjög miklar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár