Samtök iðnaðarins vilja framlengja milljarða króna endurgreiðslur vegna byggingavinnu

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á voru end­ur­greiðslur vegna „Allir vinna“ átaks­ins hækk­aðar upp í 100 pró­sent. Á tæpum tveimur árum kost­aði það rík­is­sjóð 16,5 millj­arða króna í tekjum sem voru ekki inn­heimtar.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, skrifar undir umsögnina ásamt aðalhagfræðingi samtakanna.
Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, skrifar undir umsögn­ina ásamt aðal­hag­fræð­ingi sam­tak­anna. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök iðn­að­ar­ins vilja að stjórn­völd haldi áfram að end­ur­greiða 100 pró­sent virð­is­auka­skatts af vinnu manna á bygg­ing­ar­stað til að stuðla að auk­inni hús­næð­is­upp­bygg­ingu.

[links]Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna um fyr­ir­liggj­andi fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023 til 2027 sem skilað var inn til fjár­laga­nefndar í síð­ustu viku. Um er að ræða end­ur­greiðslur undir hatti átaks sem kall­ast „Allir vinna“ og felur í sér end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatt vegna ýmiss konar iðn­að­ar­vinnu, þar á meðal bygg­ingar og við­hald hús­næðis og bíla­við­gerð­ir.

Átak­inu var fyrst hrundið af stað í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins frá 2010 til 2015, en það var svo komið aftur á árið 2020, þegar búist var við hruni í bygg­ing­ar­iðn­að­inum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem lagt var fram í des­em­ber í fyrra kom fram að auknar og útvíkk­aðar end­ur­greiðslur á virð­is­auka­skatti frá byrjun far­ald­urs­ins til árs­loka 2021 hafi numið 16,5 millj­örðum króna. Þar sagði einnig að ef úrræðin yrðu fram­lengd í óbreyttri mynd út árið 2022 gæti rík­is­sjóður orðið af 12 millj­örðum króna á næsta ári.

Ráðuneytið lagðist gegn framlengingu

Þegar fjár­lög vegna árs­ins 2022 voru til umfjöll­unar á Alþingi í fyrra var þó ákveðið að fram­lengja úrræðið í tak­mark­aðri mynd út ágúst­mán­uð 2022 í kjöl­far beiðni um slíkt frá Sam­tökum iðn­að­ar­ins. Það gerð­ist í nefnd­ar­störfum innan efna­hags- og við­skipta­nefndar og fjár­laga­nefndar. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafði hins vegar mælt gegn slíkri fram­leng­ingu í áður­nefndu minn­is­blaði sem það sendi til efna­hags- og við­skipta­nefndar þings­ins, en þar stóð að hún fæli í sér inn­spýt­ingu á fjár­magni í hag­kerfi sem sé nú þegar þan­ið.

[adspot]Í upp­haf­legu fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar hafði verið gert ráð fyrir að þessar end­ur­greiðslur myndu tak­markast við 60 pró­sent frá ára­mót­um, eins og var fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­urinn, en það breytt­ist í með­förum þings­ins. Einnig var ákveðið að áfram yrði hægt að fá fulla end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti vegna vinnu við hönnun og eft­ir­lit íbúð­ar- og frí­stunda­hús­næð­is, nýbygg­ingar og við­hald frí­stunda­hús­næðis og annað hús­næði sveit­ar­fé­laga fram til 30. júní, en að þeim tíma liðnum falla þær end­ur­greiðslur alveg nið­ur.

Áætl­aður tekju­missir rík­is­sjóðs vegna þess­ara breyt­inga nemur 7,2 millj­örðum króna á árinu 2022. Til þess að setja þá tölu í sam­hengi, þá er það sam­bæri­leg upp­hæð og áætlað er að verja til bygg­ingar nýs Land­spít­ala á árinu.

Vinni gegn svartri atvinnustarfsemi

Nú vilja Samtök iðn­að­ar­ins að 100 pró­sent end­ur­greiðslan verði lengur við lýði. Í umsögn sinni um fjár­mála­á­ætlun segja þau að átakið hafi leitt til þess að upp­bygg­ingu og við­haldi hús­næðis var betur sinnt en áður bæði hjá neyt­endum og ekki síður sveit­ar­fé­lögum á far­ald­urs­tím­anum. „Verk­efn­inu hefur einnig fylgt ávinn­ingur í bar­átt­unni gegn svartri atvinnu­starf­semi, ásamt því að skapa störf og við­halda verð­mæti eigna.“

Samtökin segja að óhætt sé að full­yrða að átakið hafi átt sinn þátt í því að nið­ur­sveiflan í bygg­ing­ar­iðn­aði og mann­virkja­gerð hafi verið minni en oft áður í fyrri efna­hags­nið­ur­sveiflum. „Átakið hefur verið vel nýtt af neyt­endum sem hafa með við­haldi og end­ur­bótum stutt við starf­semi ein­yrkja og minni fyr­ir­tækja sem starfa á við­halds­mark­aði. Á þeim mark­aði eru fag­lærðir iðn­að­ar­menn oft í sam­keppni við rétt­inda­lausa aðila og svarta atvinnu­starf­semi en átakið dregur í eðli sínu úr slíkum við­skipta­háttum og styður því við fyr­ir­tæki sem vinna eftir lögum og reglum.“

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, lagði fram form­lega fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þann 17. jan­úar síð­ast­lið­inn um hvernig end­ur­greiðslu­upp­hæðir vegna verk­efn­is­ins „Allir vinna“ árin 2020 og 2021 skipt­ust eftir sveit­ar­fé­lög­um, lög­að­il­um, ein­stak­lingum og tekju­tí­und­um. Auk þess spurði hún hvort meintur ávinn­ingur rík­is­sjóðs vegna átaks­ins, sem Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, sagði að væri „óyggj­and­i“, hefði verið met­inn.

Nú, fjórum mán­uðum eftir að fyr­ir­spurnin var lögð fram, hefur henni enn ekki verið svarað.

Fjár­mála­á­ætlun er á dag­skrá fundar fjár­laga­nefndar í dag þegar Alþingi tekur aftur til starfa að loknum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár