Íbúðalánavextir hafa ekki verið hærri í tólf ár – Greiðslubyrði upp um 65 prósent frá 2021

Sam­an­lagt borga þeir lán­takar sem eru með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum 1,6 millj­örðum krónum meira í vaxta­kostnað á mán­uði nú en þeir gerðu fyrir einu og hálfu ári síðan. Verð­tryggð lán eru að sækja í sig veðrið. Mark­að­ur­inn er þó að kólna.

Greiðslubyrði þeirra sem keyptu húsnæði með óverðtryggðu láni á breytilegum vöxtum á meðan vextir voru í sögulegu lágmarki hefur hækkað gríðarlega.
Greiðslu­byrði þeirra sem keyptu hús­næði með óverð­tryggðu láni á breyti­legum vöxtum á meðan vextir voru í sögu­legu lág­marki hefur hækkað gríð­ar­lega. Mynd: Bára Huld Beck

Eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands, þegar vext­irnir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent og höfðu þá hækkað um þrjú pró­sentu­stig frá því í byrjun maí 2022, hafa lán­veit­endur hækkað breyti­lega óverð­tryggða vexti sína. Nú eru lægstu óver­tryggðu vextir sem íslenskir bankar, stærstu lán­veit­end­urnir á mark­aðnum, bjóða upp á 7,25 til 7,59 pró­sent. Slíkir vextir hafa ekki verið hærri frá árinu 2010, eða í skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinnu­líf.

Þessa stöðu má lesa út úr nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS).

Þar er einnig fjallað um þau áhrif sem þessar vaxta­hækk­anir hafa haft á greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána. Á fyrri hluta 2021, þegar stýri­vextir voru 0,75 pró­sent, var sá sem var með 50 milljón króna hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum að borga 188.500 krónur af því á mán­uði. Nú, einu og hálfu ári síðar er sú afborgun komin í 311.500 krónur. Því borgar þessi lán­taki 123 þús­und krónur meira á mán­uði í afborg­anir af íbúða­lán­inu sínu nú en hann gerði í maí 2021. Það er hækkun upp á 65 pró­sent.

Kjarninn greindi frá því í lok síð­ustu viku að allir stóru íslensku bank­arnir: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, hefðu hækkað vexti sína í kjöl­farið af síð­ustu stýri­vaxta­hækkun.

Samanlögð greiðslubyrði aukist um 1,6 milljarða

Í nýjasta Fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­riti Seðla­­banka Íslands kom fram að ​​um 28 pró­­sent úti­stand­andi fast­­eigna­lána eru óverð­­tryggð og með breyt­i­­legum vöxt­­um. Sam­an­lögð upp­­hæð þeirra eru á sjö­unda hund­rað millj­­arða króna.

Þá stytt­ist í end­­ur­­skoðun á vaxta­­kjörum fjölda óverð­­tryggðra lána sem veitt voru á föstum vöxtum til til­­­tek­ins tíma, en alls verða vextir á lánum upp á 340 millj­­arða króna end­­ur­­skoð­aðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 millj­­arða króna koma til end­­ur­­skoð­unar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverð­­tryggð.

HMS ályktar að stabb­inn af breyti­legum óverð­tryggðum lánum sé aðeins minna hlut­fall en Seðla­bank­inn taldi, eða 27 pró­sent. Stofn­unin telur að sam­an­lögð greiðslu­byrði lána á breyti­legum óverð­tryggðum gæti verið um 3,9 millj­arða króna á mán­uði en hefði verið 2,3 millj­arðar króna ef vextir væru enn í lág­marki.

Þess ber þó að gera að óverð­tryggðir vextir eru enn tölu­vert undir verð­bólgu, sem mælist 9,3 pró­sent. Raun­vextir þessa hóps lán­tak­anda eru því nei­kvæðir og eigna­myndun á síð­ast­liðnu ári, þegar hús­næð­is­verð hefur hækkað um 22 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, verið umtals­verð hjá þessum hópi þrátt fyrir að greiðslu­byrðin hafi hækkað mikið.

Verðtryggð lán sækja í sig veðrið

Til­gangur hinna miklu stýri­vaxta­hækk­ana sem Seðla­bank­inn hefur ráð­ist í var að kæla fast­eigna­mark­að­inn, sem var stærsta breytan í síhækk­andi verð­bólgu. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði á opnum fundi hjá efna­hags- og við­skipta­nefnd í gær að verð­bólgan hefði senni­lega náð hámarki sínu og að hann von­að­ist til þess að stýri­vaxta­hækk­un­ar­ferl­inu væri nú lokið. Grein­ing­ar­að­ilar búast þó ekki við því að vextir fari að lækka á ný fyrr en í fyrsta lagi seint á næsta ári.

Ýmis merki eru til staðar um að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé að kólna hratt. Í skýrslu HMS kemur fram að fram­boð íbúða hafi auk­ist hratt, við­skiptum fer fækk­andi og sömu­leiðis hefur hlut­fall íbúða sem selst yfir ásettu verði minnkað. „Nokkuð ljóst er að það eigi eftir að draga veru­lega úr verð­hækk­unum sem hafa ein­kennt fast­eigna­mark­að­inn á und­an­förnum árum en óvíst er hvort að fast­eigna­verð eigi eftir að lækka. Það veltur meðal ann­ars á því að hve miklu leyti heim­ilin eru til­búin til að fjár­magna sig á verð­tryggðum lánum,“ segir í skýrsl­unni.

Þar kemur auk þess fram að verð­tryggð lán hafa verið að sækja í sig veðrið. Heild­ar­upp­hæð hreinna nýrra verð­tryggðra íbúða­lána voru jákvæð í ágúst sem þýðir að ný útlán voru meiri en upp­greiðslur og óreglu­legar inn­á­borg­anir. Það er í fyrsta sinn sem það ger­ist síðan í febr­úar 2020.

Íbúðaverð hækkar, en hægar

Þjóðskrá birti tölur í gær sem sýndu að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,8 pró­sent í sept­em­ber, eftir að hafa lækkað um 0,4 pró­sent mán­uð­inn áður. Það var í fyrsta sinn síðan 2019 sem verðið lækk­aði milli mán­aða. Þriggja mán­aða hækkun íbúða­verðs hefur hins vegar tekið stakka­skiptum. Það var 9,1 pró­sent í maí en er nú 1,5 pró­sent.

Nú eru 1.300 íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þegar fram­boðið var sem minnst í febr­úar síð­ast­liðnum voru þær innan við 450 tals­ins. Fram­boðið hefur því þre­fald­ast á átta mán­uðum og í skýrslu HMS kemur fram að því í lok júlí hafi það auk­ist um 89 pró­sent.

Samkvæmt íbúða­taln­ingu HMS og Samtaka iðn­að­ar­ins sem fram­kvæmd var í ágúst og sept­em­ber voru 8.113 íbúðir í bygg­ingu á land­inu öllu sam­an­borið við 7.260 í taln­ing­unni í mars og 6.001 íbúð í sept­em­ber í fyrra. „Aukn­ingin frá því á sama tíma í fyrra nemur því 35,2 pró­sentum. Mesta aukn­ingin er í Kraganum, þ.e. á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir utan Reykja­vík­ur­borg, en þar hefur fjöldi íbúða í bygg­ingu nær tvö­fald­ast frá því á sama tíma fyrir ári. • Ef aðeins er miðað við íbúðir sem nú þegar eru í bygg­ingu má gera ráð fyrir að í ár og á næstu tveimur árum verði byggðar um 3.000-3.200 íbúðir á ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár