Vill að ferðamenn beri meiri ábyrgð og að björgunarsveitir fái einkasöluleyfi fyrir flugeldum

Tómas A. Tómasson, eða Tommi eins og hann er alltaf kall­aður, lagði ýmis­legt til í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann vill meðal ann­ars huggu­lega klukku í þingsal­inn.

Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins.
Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Flokks fólks­ins, Tómas A. Tómasson, greindi frá því undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag að ekki alls fyrir löngu hefði hann hitt konu sem var nýkomin úr skíða­ferð til Ítalíu.

„Hún var að lýsa fyrir mér ferð­inni, hvað hún hefði verið dásam­leg í alla staði en það sem hún hefði þurft að hafa með sér af vott­orðum. Það var meðal ann­ars bólu­setn­ing­ar­vott­orð, heil­brigð­is­vott­orð og svo trygg­inga­vott­orð,“ sagði Tómas og spurði kon­una hvort um trygg­inga­vott­orð hefði verið að ræða.

„Já, ef skíða­maður skíðar á annan mann í brekk­unum þá er hann skaða­bóta­skyldur. Þá fór ég að hugsa: Við erum með dásam­legar flug­björg­un­ar­sveitir út um allt land, fólk sem er í sjálf­boða­vinnu, og við erum með land­helg­is­gæslu sem er með þyrlur. Fari ein­hver maður upp á fjöll og lendi í ógöngum eru kannski 50, 60 eða 70 ein­stak­lingar komnir með dýran útbúnað og það kostar tugi millj­óna að hjálpa fólki sem fer oft og tíðum í hálf­gerðum óvita­skap upp á fjöll,“ sagði hann.

Forseti Alþingis einnig upptekinn af því hvað klukkan er

Lagði Tómas í fram­hald­inu til að hugsað yrði alvar­lega um það að fólk sem hingað kemur – ferða­menn sem ætla að fara upp á fjöll og njóta nátt­úr­unnar – þyrfti að bera ábyrgð á því sem það gerði. Þetta væri kostn­að­ar­samt.

„Ég legg til í leið­inni að allar björg­un­ar­sveitir fái einka­sölu­leyfi fyrir flug­eldum um ára­mót. Það er út í hött að leyfa venju­legu fólki að flytja inn flug­elda og taka aðal­tekju­lind­irnar frá íþrótta­fé­lögum og björg­un­ar­sveitum.

Að lokum er hérna þessi dásam­lega mynd af Jóni Sig­urðs­syni for­seta, sem er ágæt. Ég legg til að þarna á móti komi huggu­leg klukka sem við getum horft á því að maður vill alltaf vita hvað klukkan er,“ sagði hann að lokum.

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis sagð­ist einnig vera upp­tek­inn af því hvað klukkan væri en þing­mað­ur­inn fór aðeins fram yfir ræðu­tím­ann. „Forseti minnir þing­menn á að virða ræðu­tím­ann, sem er tvær mín­útur í störfum þings­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár