Donald Trump birti mynd af sér og nasistum - Og leiddi síðan skoðanakönnun

Bandaríski auðkýfingurinn og nú forseta­fram­bjóðandinn Donald Trump er vinsælasta forseta­efni meðal Repúblikana, samkvæmt skoðana­könnunum bandarískra fjölmiðla síðustu daga. Óvægin, umdeild og yfir­lýsingar­glöð kosninga­barátta Trumps virðist falla vel í kramið hjá mörgum Bandaríkja­mönnum. Í gær birti USA Today könnun sem sýnir 17 prósent stuðning við Trump meðal forseta­efna Repúblikana­flokksins, um þremur prósentu­stigum meira en hjá næsta fram­bjóðenda, Jeb Bush.

Um klukku­stund áður en niður­stöður könnunar USA Today lágu fyrir í gær, þá birtist samsett mynd á Twitter-síðu Trumps þar sem andlit hans, Hvíta húsið, peninga­seðlar og hermenn hafa verið skeyttir ofan á bandaríska fánann. Ef rýnt er í myndina má sjá kenni­merki SS-sveita nasista á handlegg hermannanna. Svo virðist sem myndin sé af hermönnum nasista.

Skjáskot The Guardian af tísti Donald Trump.

Skjáskot The Guardian af tísti Donald Trump.
Skjáskot The Guardian af tísti Donald Trump.

The Guardian greinir frá í dag en myndinni var fljótlega eytt af Twitter-síðu Trumps og skuldinni skellt á starfs­nema á kosninga­skrif­stofunni. Blaða­maður The Guardian metur það líklegast að starfs­fólk Trumps hafi sótt ókeypis mynd úr mynda­banka og ekki séð að hún er af leikurum í gervi nasista.

Ræður Trump hafa oft ratað í fjölmiðla síðan hann tilkynnti um framboð sitt til forseta­efnis Repúblikana um miðjan síðasta mánuð. Stefna hans þykir óvægin og harðneskju­full. Vinsældir í skoðana­könnunum koma í kjölfar afar umdeildara ummæla hans um innflytjendur í Banda­ríkjunum. „Þegar Mexíkó sendir fólkið sitt, þá er það ekki besta fólkið þeirra. Þau senda fólk sem glíma við mörg vandamál og þau taka þessi vandamál með sér. Þau taka með sér fíkniefni og glæpi. Þetta eru nauðgarar,“ sagði Trump í einni umdeildustu ræðu sinni þar sem hann fjallaði um innflytjendur í Banda­ríkjunum frá Mexíkó.

Mörgum þykir afstaða Trump afar fordóma­full og fáfróð. Vegna ummæla sinna hefur hann misst sjónvarps­samning og fjölmörg fyrirtæki hafa rift samningum við hann. Engu að síður hafa vinsældirnar haldið áfram að aukast í skoðana­könnunum. Það bendir til að hluti bandarískra kjósenda tekur undir afstöðu Trumps í innflytjenda­málum, sem hafa verið fyrir­ferðamest í kosninga­baráttu Trumps til þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár