Ójafnvægi milli meirihluta og minnihluta – „Þetta er 100 prósent gegn 0 prósent“

Tveir þing­menn gerðu störf þings­ins að sér­stöku umræðu­efni á Alþingi í dag. Annar vill að meiri­hlut­inn geri sér grein fyrir dag­skrár­valdi sínu og hinn vill sér­stakan skjá fyrir þing­menn svo þeir geti flutt ræð­urnar með betri hætti.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata gerði störf þings­ins að umræðu­efni undir sam­nefndum lið á Alþingi í dag. Hann sagði að það virt­ist vera mik­ill mis­skiln­ingur hjá fólki almennt að þegar talað væri um minni­hluta og meiri­hluta, sem væri vissu­lega ákveðin stað­reynd á þingi, þá væri „það samt ekki satt“.

„Hér eru flokkar sem taka sér dag­skrár­vald og flokkar sem hafa bara aðgang að ræðu­stól þings­ins. Það snýst ekki um meiri­hluta og minni­hluta því að í raun skipta atkvæði minni­hlut­ans engu máli. Það er dag­skrár­stjórn­unin, dag­skrár­valdið, sem skiptir öllu máli. Þetta er 100 pró­sent gegn 0 pró­sent, ekki meiri­hluti og minni­hluti,“ sagði hann.

Setti hann þetta í sam­hengi við skipu­lags­breyt­ingu á þing­inu, til að mynda stytt­ingu vinnu­vik­unnar. „Nú er staðan þannig að það eru þing­fundir til klukkan 8 flesta daga. Ekki á föstu­dögum, en þeir geta staðið til mið­nættis á þriðju­dögum. Það er alveg gríð­ar­lega óhag­kvæmt umhverfi til að vinna í upp á vinnu­skorpur og ýmis­legt slíkt í stað­inn fyrir að meira jafn­vægi væri í þessu dag­inn út og inn og árið fram og til baka.“

Björn Leví vildi beina því til þing­manna að þeir hugs­uðu á kom­andi vikum, þegar þeir væru að reyna að koma saman starfs­á­ætlun þings­ins, um hið innra skipu­lag vik­unnar og ójafn­vægið á milli þeirra sem taka sér dag­skrár­valdið og hinna sem þyrftu að reyna að „vinna innan þeirrar kúg­unar“.

„Ef ein­hverjir taka sér meiri­hluta­valdið, taka sér 100 pró­sent dag­skrár­vald, þá er það þeirra að byrja að vera mál­efna­legir,“ sagði hann.

Vill skjá fyrir þingmenn svo þeir geti „horfst í augu við þjóð sína“

Jakob Frímann Magn­ús­son þing­maður Flokks fólks­ins fjall­aði einnig um störf þings­ins í sinni ræðu undir sama lið.

„Ég vil ræða störf þings­ins og með hvaða hætti við getum bætt okkur í þeim efnum. Og þá er það nú fyrst og fremst á tækni­lega svið­inu. Ég hefði talið að margir þeirra sem hér koma í pontu með skrif­aðar ræður – sér­stak­lega þegar við erum í beinni útsend­ingu sem þjóðin getur fylgst með og gerir kannski meira en okkur grunar – að þá væri meiri mynd­ar­bragur yfir því ef menn gætu horft upp úr ræð­unni ef það væri ein­hvers konar „promter“ eða skjár, til dæmis hér beint á móti sem menn gætu lesið af tölv­unni af slíkum skjá og horfst í augu við þjóð sína á meðan þeir flytja mál sitt og von­andi með enn meira sann­fær­andi hætti.“

Hann sagði að allir sem hefðu verið í útsend­ingum í sjón­varpi eða ráð­stefnum þekktu. „Þetta er til­tölu­lega við­tek­inn nútíma­legur máti og þá sömu­leiðis ef menn vilja leggja sér­staka áherslu á mál sitt og gera það með mynd­ar­brag að geta gripið til stoð­tækja á borð við skjá á vegg tengdan við tölvu með áherslu­at­riðum í máli og myndum. Þetta get ég full­yrt af eigin raun að hefur gert ræður margra eft­ir­minni­legri, skýr­ari og skemmti­legri.“

Hann lagði enn fremur til að Alþingi myndi fjölga útsend­ing­ar­vinklum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár