Alþingi undirbýr þingsetningu – Stóll forseta kominn í salinn

Stóll for­seta Íslands er kom­inn á sinn stað í þing­sal Alþingis en þing­setn­ing fer fram á morgun. Fjöl­miðla­fólk og ljós­mynd­arar þurfa að fara í hrað­próf fyrir þing­setn­ing­una.

Stóll forseta Íslands
Stóll for­seta Íslands Mynd: Facebook/Alþingi

Und­ir­bún­ingur fyrir þing­setn­ingu stendur nú sem hæst en 152. lög­gjaf­ar­þing verður sett á morgun, þriðju­dag­inn 23. nóv­em­ber klukkan 13:30. Stóll for­seta Íslands hefur verið færður í þingsal­inn. Forseti Íslands setur Alþingi og flytur ávarp úr ræðu­stól Alþingis og sest að því búnu í stól­inn, sem aðeins stendur í þingsalnum í þetta eina skipti á árinu.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hjá Alþingi á Facebook í dag.

Krafa er gerð til fjöl­miðla­fólks sem hyggst vera við­statt þing­setn­ing­ar­at­höfn­ina í Alþing­is­hús­inu að það fari í hrað­próf á við­ur­kenndum sýna­töku­stað.

Ekki liggur enn fyrir hverjar nið­ur­stöður und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefndar verða vegna taln­inga­máls­ins í Norð­verst­ur­kjör­dæmi en nefndin mun funda seinna í dag.

RÚV greindi frá því í morgun að síð­ast þegar leið jafn langur tími og nú milli kosn­inga og þing­setn­ingar hafi Vigdís Finn­boga­dóttir verið for­seti, Davíð Oddsson borg­ar­stjóri og hafi Þor­steinn Pálsson tekið við stjórn­ar­taumunum í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu af Stein­grími Her­manns­syni.

Alþingi kemur saman á morgun í fyrsta skipti frá 6. júlí. Þá verður lið­inn lengsti tími í yfir 30 ár milli alþing­is­kosn­inga og þing­setn­ingar, og með lengri tímum í lýð­veld­is­sög­unni frá því þingi var slitið fyrir kosn­ingar þar til það kom fyrst saman að þeim loknum, að því er fram kemur í frétt RÚV.

„Á morgun hafa liðið 58 dagar frá kjör­degi að þing­setn­ing­ar­degi, ef við sleppum því að telja þá báða með. Það er tólf dögum lengra en fyrir fjórum árum og 21 degi lengra en 2016 þegar þing kom saman eftir fimmtu lengstu stjórn­ar­kreppu lýð­veld­is­sög­unnar,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár