Guðmundur Björgvin Helgason nýr ríkisendurskoðandi

Kosning nýs rík­is­end­ur­skoð­anda fór fram á Alþingi í morgun og var starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi kos­inn í emb­ættið.

Guðmundur Björgvin Helgason
Guð­mundur Björgvin Helgason Mynd: Ríkisendurskoðun

Guð­mundur Björgvin Helgason, starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, hefur verið kos­inn rík­is­end­ur­skoð­andi til næstu sex ára. Alþingi sam­þykkti skipun hans rétt í þessu eftir til­lögu frá for­sætis­nefnd.

Atkvæði féllu þannig að hann hlaut 54 sam­hljóða atkvæði en þrír þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Guð­mundur var í hópi 12 umsækj­enda um emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda. Sam­­kvæmt lögum skal for­­sæt­is­­nefnd gera til­­lögu til þings­ins um ein­stak­l­ing til að gegna emb­ætt­inu, sem svo verður kjör­inn á þing­fundi. Alþingi kýs rík­­is­end­­ur­­skoð­anda til sex ára í senn en heim­ilt er að end­­ur­kjósa sama ein­stak­l­ing einu sinn­i.

Skúli Eggert Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, tók við nýju starfi í byrjun febr­úar síð­ast­lið­ins þegar hann var fluttur til starfa í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu.

Forseti Alþingis, Birgir Ármanns­son, fól í fram­hald­inu Guðmundi B. Helga­syni stjórn­mála­fræð­ingi að gegna starfi rík­is­end­ur­skoð­anda þar til kosn­ing nýs rík­is­end­ur­skoð­anda færi fram á Alþingi.

Guð­mundur Björgvin var sviðs­stjóri hjá Rík­is­end­ur­skoðun og for­stöðu­maður skrif­stofu emb­ætt­is­ins á Akureyri. Hann var áður ráðu­neyt­is­stjóri í land­bún­að­ar­ráðu­neyti og mannauðs­stjóri hjá Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna í Jórdaníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár