Hagnaður í sjávarútvegi 27 milljarðar í fyrra

Hagnaður í sjáv­ar­út­vegi jókst til muna á milli ára en hann nam 12,2 pró­sentum í fyrra sam­an­borið við 7,1 pró­sent árið áður. Í árs­lok 2018 var eigið fé sjáv­ar­út­vegs­ins tæpir 297 millj­arðar króna.

Hagnaður í sjáv­ar­út­vegi jókst tölu­vert í fyrra þrátt fyrir að veiði­gjöld hafi aldrei verið hærri. Hreinn hagn­aður (EBT) í sjáv­ar­út­vegi nam 26,9 millj­örðum króna í fyrra, sam­kvæmt árgreiðslu­að­ferð. Hagn­að­ur­inn nam 12,2 pró­sentum sam­an­borið við 7,1 pró­sent árið áður.

Þetta kemur fram hag­tíð­indum Hagstofu Íslands en hún tekur árlega saman yfir­lit um rekstur helstu greina sjáv­ar­út­vegs. Úrvinnsla Hagstofu Íslands á þessum gögnum er með sama hætti og tíðkast hefur um langt ára­bil og er að mestu leyti reist á upp­gjörs­að­ferðum sem beitt er við gerð þjóð­hags­reikn­inga.

Í sam­an­tekt Hag­stof­unnar kemur fram að hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og tekju­skatt (EBITDA) sem hlut­fall af heild­ar­tekjum hækk­aði milli áranna 2017 og 2018. Í fisk­veiðum og fisk­vinnslu hækk­aði hlut­fallið (án milli­við­skipta) úr 21,2 pró­sentum í 25,2 pró­sent, í fisk­veiðum fór hlut­fallið úr 18,1 pró­senti í 18,0 pró­sent og í fisk­vinnslu úr 10,6 pró­sentum í 14,8 pró­sent.

Hagnaður í sjáv­ar­út­vegi ef við miðað er við upp­gjörs­að­ferð er 11,5 pró­sent árið 2018 eða 25,4 millj­arðar sam­an­borið við 6,9 pró­sent hagnað árið 2017 eða 13,1 millj­arðar.

Samkvæmt efna­hags­reikn­ingi voru heild­ar­eignir sjáv­ar­út­vegs­ins rúmir 709 millj­arðar króna í árs­lok 2018. Heild­ar­skuldir hækk­uðu um 10 pró­sent á milli ára og numu 412 millj­örðum króna. Eigið fé sjáv­ar­út­vegs­ins var tæp­lega 297 millj­arðar króna í árs­lok 2018.

Ótrú­legt góð­æri í grein­inni síð­ast­lið­inn ára­tug

Frá hruni hefur eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008. Nú, líkt og áður sagði er eigin fjár­staða jákvæð um 297 millj­arða króna.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 92,5 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­ur.

Sam­an­lagt hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins, því vænkast um 447,5 millj­arða króna frá árinu 2008 og út síð­asta ár, eða á einum ára­tug.

Veiði­gjöld voru 11,3 millj­arðar króna í fyrra, sem eru þau hæstu sem geir­inn hefur greitt. Það nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára, úr 6,8 millj­örðum króna árið 2017. Sam­tals frá árinu 2011, og út síð­asta ár, greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn 63,3 millj­arða króna í veiði­gjöld.

Veiði­gjöldin áttu að lækka á þessu ári, og áætlað var að þau myndu skila um sjö millj­örðum króna í rík­is­kass­ann í ár sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­i stjórn­valda. Veiði­gjöldin eiga síðan að skila inn enn minna í rík­is­kass­ann á næsta ári vegna fjár­fest­inga í grein­inni eða alls 5 millj­arða króna.

Ný lög um veið­i­­­gjald tóku gildi um síð­­­ustu ára­­mót þar sem meðal ann­­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­­stofns. Í fjár­­laga­frum­varp­inu sagði að með breyt­ing­unum sé dregið úr töf við með­­­ferð upp­­lýs­inga um átta mán­uði. „Þá er veið­i­­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veið­i­­ár­s.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár