Núverandi kerfi svo uppfull af plástrum að það er „næsta vonlaust“ að skilja hvernig þau virka

Þing­maður Pírata segir að þing­menn verði að sýna þjóð­inni það að þeir séu til­búnir að leggja sitt af mörkum til að vinna sem ein heild.

Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata.
Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Ólíkt flestum ræðum sem haldnar eru undir þessum lið, störf þings­ins, þá ætla ég að nota þetta tæki­færi til að tala akkúrat um það, störf þings­ins.“

Þannig hóf Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata ræðu sína á Alþingi í vik­unni undir liðnum störf þings­ins.

Hann sagði að það væri iðu­lega þannig að þegar bent væri á að ein­hver kerfi á Íslandi væru gölluð væri svar rík­is­stjórn­ar­innar að ekki væri vert að gera neitt í þeim núna því að heild­ar­end­ur­skoðun þyrfti að fara fram í þessum mála­flokki í stað þess að bæta fleiri plástrum á núver­andi kerfi.

Gísli Rafn sagði að rík­is­stjórnin hefði að vissu leyti rétt fyrir sér. „Núver­andi kerfi eru svo upp­full af plástrum að það er næsta von­laust fyrir neinn að skilja hvernig þau virka. Gott dæmi um þetta er það stuðn­ings­net sem búið hefur verið til fyrir eldra fólk og öryrkja. En það þýðir heldur ekki að nota heild­ar­end­ur­skoðun fyrir sem afsökun fyrir því að gera ekki neitt. En af hverju tekur svo langan tíma að ná fram heild­ar­end­ur­skoðun á mik­il­vægum mála­flokkum?“ spurði hann.

„Jú, ástæðan er frekar ein­föld og liggur í þeim vinnu­brögðum sem tíðkast hjá meiri hlut­anum. Starfs­fólk ráðu­neyta er sett í að vinna ný frum­vörp, oft án mik­illar þátt­töku þings­ins og þeirra sem lögin hafa áhrif á, frum­vörp sem síðan er reynt að keyra í gegnum þingið án mik­illar umræðu. Þetta leiðir til þess að engin sam­staða næst um við­kom­andi heild­ar­end­ur­skoðun og hún endar ofan í skúffu þar til á næsta þingi, þar sem hún er lögð fram lítið breytt og mætir sömu enda­lokum ár eftir ár.

Leiðin út úr þess­ari vit­leysu er ein­föld en krefst fórna. Grund­völl­ur­inn felst í vilj­anum til þess að hlusta á og taka til­lit til skoð­ana ann­arra og virkja fleiri í vinn­unni við að skapa ný kerfi. Við þing­menn verðum dæmd af því í næstu kosn­ingum um hversu vel við höfum unnið saman að því að bæta sam­fé­lagið. Sýnum þjóð­inni það að við séum til­búin til að leggja okkar af mörkum til að vinna sem ein heild,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár