Segir SA bera mikla ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er komin

Fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur að ekki megi skella allri skuld á verka­lýðs­for­yst­una og að hún sé að bregð­ast við þeim aðstæðum sem uppi eru komnar í sam­fé­lag­inu.

Þorsteinn Pálsson
Þor­steinn Pálsson Mynd: Skjáskot/RÚV

Ákveðin hætta er á ferðum varð­andi kjara­samn­inga og verk­föll, sam­kvæmt Þor­steini Pálssyni, fyrr­ver­andi rit­stjóra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hann var í við­tali í Silfrinu á RÚV í morgun.

„Margir tala um nýja verka­lýðs­for­ystu en ég brosi nú svo­lítið út í annað því mér finnst þetta vera svo­lítið gam­al­dags. Eins og við séum að fara svo­lítið inn í gamlan tíma,“ segir hann og bætir því að ekki sé mikið um nýjar eða ferskar hug­myndir hjá verka­lýðs­for­yst­unni.

Að hans mati má þó ekki skella allri skuld­inni á verka­lýðs­for­yst­una. „Ég held að hún sé að bregð­ast svo­lítið við aðstæðum í sam­fé­lag­inu og það er ekki hægt að horfa fram hjá því að Samtök atvinnu­lífs­ins bera mikla ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er komin. Það hefur líka orðið stefnu­breyt­ing á þeim vett­vangi, ekki síður,“ segir hann.

SA hlaupið frá grundvallaratriðinu

Þor­steinn rifjar upp að fyrir fimm árum þá hafi það verið skil­yrði hjá SA og ASÍ að fara í við­ræður við rík­is­stjórn­ina og grund­vall­ar­at­riðið var að semja um mynt sem væri stöðug. SA hafi hlaupið frá þessu grund­vall­ar­at­riði og skapi það nýjar aðstæður í sam­fé­lag­inu. „Það er ekki hægt að taka þá ábyrgð frá þessum sam­tökum,“ segir hann.

„Ef við horfum til baka á þjóð­ar­sátt­ina og rifjum upp út á hvað hún gekk árið 1990 þá voru engar vin­sæld­ar­að­gerðir sem var verið að semja um milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins og rík­is­stjórn­ar­innar,“ segir hann. Það sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins hafi lagt við var að afnema nýum­samdar launa­hækk­anir háskóla­mennt­aðra og rík­is­starfs­manna sem rík­is­stjórnin hafði nýlega skrifað undir.

Hitt atriðið hafi verið að tryggja stöðugt gengi. „Það var lyk­il­at­riðið sem gengið var út frá í þjóð­ar­sátt­inni. Það var þetta sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins fóru fram á við rík­is­stjórn­ina og það reynd­ist svo unnt að verða við þessum óskum. Fyrir fimm til sex árum voru SA enn með sömu stefnu en nú hafa þau hlaupið frá henni,“ telur hann. Þetta sé að skapa hinn stóra og alvar­lega vanda.

Þor­steinn seg­ist þó ekki vera að draga úr ábyrgð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar en hann telur að skýra verði þá stöðu sem upp er komin með þess­ari grund­vall­ar­stefnu­breyt­ingu hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins.

Stjórnvöld vilja ekki takast á við óréttlætið

Þor­steinn segir að þrátt fyrir að há laun ýmissa for­stjóra og hækk­anir kjara­ráðs hafi haft áhrif á við­ræð­urnar þá sé til­tölu­lega mik­ill launa­jöfn­uður hér á landi en að það orðið hafi meiri mis­skipt­ing er varðar eignir í þessu sam­fé­lagi en víða ann­ars staðar. Þor­steinn spyr sig hvers vegna það sé að ger­ast. „Menn loka aug­unum fyrir því. Við búum við meiri ójöfnuð á fjár­mála­mark­aði en í nokkru öðru lýð­ræð­is­ríki. Stór hluti atvinnu­lífs­ins er utan við krónu­hag­kerfið og síðan er það launa­fólkið sem á að starfa í því kerfi.“ Hann telur þetta búa til mis­rétti sem fólk eðli­lega sættir sig ekki við.

„Þetta er órétt­læti sem grefur um sig og stjórn­völd vilja ekki taka á af því að það eru ákveðin hags­muna­öfl sem toga í flokk­ana, bæði frá hægri og vinstri til að við­halda þessu ójafn­rétti,“ segir hann og bætir því við að vanda­málið sé í grunn­gerð efna­hags­stefn­unnar og nú hafi menn myndað rík­is­stjórn til að verja þetta mis­rétti og koma í veg fyrir að það sé leið­rétt. „Og þegar fólk fær á til­finn­ing­una að það sé ekki einu sinni vilji til að ræða þetta þá hlýtur að fara svona.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár