Þorgerður Katrín: „Þetta er einfaldlega ekki á dagskrá“

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir að það standi alls ekki til að ríkið mæti þeirri stöðu sem er uppi í kjara­deilu sjó­manna og útgerða með sér­tækum aðgerðum. Lögbann og upp­taka sjó­manna­af­sláttar sé ekki á dag­skrá.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir það ekki á dag­skrá hjá rík­is­stjórn­inni að setja lög­bann á verk­fall sjó­manna, end­ur­vekja sjó­manna­af­slátt­inn eða mæta stöð­unni sem er uppi í kjara­deilu þeirra við útgerðir lands­ins með öðrum sér­tækum aðgerðum. „Þetta er ein­fald­lega ekki á dag­skrá. Ábyrgðin er hjá samn­ings­að­ilum og þeir vita að því,“ segir Þor­gerður Katrín í sam­tali við Kjarnann. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali í Silfrinu í gær að ekki væri til umræðu að taka upp sjó­manna­af­slátt. Þar sagði hann orð­rétt: „við erum ekki að fara að tala um sjó­manna­af­slátt að nýju.““

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er mik­ill þrýst­ingur á stjórn­völd að grípa inn í deil­una, en sjó­menn hafa verið í verk­falli frá því um miðjan des­em­ber. Póli­tískt kemur sá þrýst­ingur að mestu frá hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi og for­maður atvinnu­vega­nefndar, sagði ynda í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að hann vildi „ekki úti­loka það að ríkið kunni að þurfa að grípa inn í þetta með ein­hverjum hætti og það er hægt með öðrum hætti en með laga­setn­ingu. Stjórn­völd geta ekki látið þessa auð­lind þjóð­ar­innar liggja óbætta hjá garði. Það er bara óraun­sæi og ég veit svo sem ekki hvern menn eru að blekkja með því ef þeir eru að halda því fram að það sé hægt eða að stað­hæfa það að það verði ekki undir neinum kring­um­stæðum gripið inn í þessa kjara­deilu.“

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók undir með Páli og sagði að það væri hægt að stíga inn í deil­una með því að nota skatt­kerfið til að „liðka fyrir“. Þegar Gunnar Bragi var spurður hvort hann væri að tala um sjó­manna­af­slátt eða eitt­hvað slíkt, svar­aði hann: „Já til dæmis eitt­hvað slíkt.“

Þessi skoðun kom einnig fram í við­tali við Guðmund Krist­jáns­son, for­stjóra Brims, á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun. Þar sagði Guð­mundur, sem stýrir einu stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, að hann vilji að sjó­menn njóti dag­pen­inga­greiðslna en skatta­frá­dráttur er heim­ill á móti slíkum greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár