Enn lækka lægstu verðtryggðu vextir – Eru nú 2,15 prósent

Lægstu vextir á verð­tryggðum lánum hafa lækkað um þriðj­ung á und­an­förnum árum og eru nú rétt yfir tvö pró­sent. Dýrustu vextir við­skipta­banka eru næstum tvö­falt hærri.

Það getur munað miklu á þeim kjörum sem standa fólki sem vill kaupa húsnæði til boða.
Það getur munað miklu á þeim kjörum sem standa fólki sem vill kaupa hús­næði til boða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur lækkað breyti­lega verð­tryggða vexti sína úr 2,46 pró­sent í 2,15 pró­sent. Hann býður nú upp á lægstu verð­tryggðu vexti sem í boði eru á Íslandi.

Fyrir helgi lækk­aði Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna sína verð­tryggðu íbúða­lána­vexti niður í 2,3 pró­sent og voru það lægstu slíkur vextir sem hafa verið í boði.

Báðir sjóð­irnir eru þó með hámark á sínum lánum. Frjálsi lánar til að mynda upp að 40 millj­ónir króna fyrir par og mest fyrir 70 pró­sent af kaup­verði, en þó aldrei hærri upp­hæð en sem nemur sam­an­lögðu virði bruna­bóta­mats og lóð­ar­verðs. Þá lánar Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn ein­ungis sjóðs­fé­lögum og ekki fyrir end­ur­fjár­mögnun frá öðrum lán­veit­endum.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna lánar fyrir allt að 70 pró­sent af kaup­verði en aldrei hærri upp­hæð en 50 millj­ónum króna. Hjá honum þarf lán­tak­andi ein­ungis að hafa greitt einu sinni í sjóð­inn til að vera láns­hæfur og hægt er að end­ur­fjár­magna lán hjá honum.

Hröð vaxtalækkun hjá lífeyrissjóðunum

Verð­tryggðir vextir hafa hríð­lækkað á Íslandi á und­an­förnum þremur og hálfu ári. Breyt­ingin hófst haustið 2015 þegar stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins fóru að lána aftur á fullu til sjóðs­fé­laga sinna til íbúð­ar­kaupa á betri kjörum og að hærra veð­hlut­falli. Þá voru lægstu breyti­legu vextir sem í boði voru 3,2 pró­sent. Nú eru þeir, líkt og áður sagði, umtals­vert lægri, eða 2,15 pró­sent. Það þýðir að vext­irnir hafa lækkað um þriðj­ung frá því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hófu aftur að lána af krafti til sinna sjóðs­fé­laga.

Líkt og rakið var ítar­lega í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum um helg­ina hafa íslensku við­skipta­bank­arnir ekki getað haldið í við þá vaxta­lækkun sem orðið hefur hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Vextir þeirra eru miklu hærri en þeir sem líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða upp á. Ein ástæða þess eru sér­tækir banka­skattar sem þeir greiða en sér­stakur skattur á fjár­mála­fyr­ir­tæki er 0,376 pró­sent af öllum heild­ar­skuldum umfram 50 millj­arða króna.

Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, sagði í upp­gjörstil­kynn­ingu þess banka í síð­ustu viku að ljóst væri að erfitt yrði að ná við­un­andi arð­semi „án umtals­verðra hækk­ana á útláns­vöxtum þegar rík­is­valdið við­heldur ofur­sköttum á banka­kerfið og eft­ir­lits­að­ilar bæta við eig­in­fjár­kröfum og öðrum álögum.“

Lán afgreidd á sama stað

Vextir við­skipta­bank­anna á breyti­legum verð­tryggðum lánum upp að 70 pró­sent veð­hlut­falli eru 3,55 til 3,89 pró­sent. Það þýðir að dýr­ustu verð­tryggðu vext­irnir þeirra, sem eru hjá Arion banka, eru ekki langt frá því að vera tvö­falt hærri en ódýr­ustu vext­irnir, sem eru hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum og eru 2,15 pró­sent.

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn er rek­inn af Arion banka og er til húsa í höf­uð­stöðvum bank­ans í Borg­ar­túni. Þá sinna ráð­gjafar í úti­búum Arion banka í Borg­ar­túni, Bílds­höfða og Smára­túni afgreiðslu lána fyrir Frjálsa líf­eyr­is­sjóð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár