Lífeyrissjóður verzlunarmanna endurgreiðir hluta sjóðsfélaga ofgreidda vexti

Stjórn næst stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins hefur ákveðið að end­ur­greiða fjölda lán­tak­enda oftekna vexti sem reikn­aðir hafa verið á hús­næð­is­lán þeirra frá síð­asta sumri. Vextir hóps­ins munu auk þess lækka umtals­vert, miðað við stöðu mála í dag.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna er til heimilis í húsi verslunarinnar.
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er til heim­ilis í húsi versl­un­ar­innar. Mynd: Úr safni.

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna ákvað á fundi þann 23. jan­úar síð­ast­lið­inn að end­ur­greiða öllum lán­tökum sem tekið hafa verð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum á tíma­bil­inu frá árs­byrjun 2001 til apríl 2017 ofgreidda vexti sem þeir hafa greitt frá og með júní 2019.

Með þessu er sjóð­ur­inn að bregð­ast við ákvörðun Neyt­enda­stofu frá des­em­ber 2019 um sjóð­ur­inn hafi ekki mátt breyta því hvernig verð­tryggðir breyti­legir vextir hluta hús­næð­is­lána sjóðs­fé­laga hans voru reikn­aðir út. Það hafi verið í and­stöðu við ákvæði eldri laga um neyt­enda­lán.

Alls hefur ákvörðun Neyt­enda­stofu áhrif á öll lán með verð­tryggða breyti­lega vexti sem gefin voru út frá árs­byrjun 2001 til apríl 2017 og varðar vaxta­greiðslur frá maí 2019. Um er að ræða átta pró­sent af öllum sjóðs­fé­lags­lánum Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.

Í frétt á vef Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna frá því snemma í jan­úar segir að gert sé ráð fyrir því, með fyr­ir­vara um nán­ari skoð­un, kostn­aður sjóðs­ins vegna þessa sé innan við 30 millj­ónir króna, eða að með­al­tali um tíu þús­und krónur á hvert lán.

Forsaga máls­ins er sú að stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna tók þá ákvörðun 24. maí síð­ast­lið­inn að hækka vexti á breyti­legum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum úr 2,06 pró­sent í 2,26 pró­sent frá og með ágúst­byrjun 2019. Sam­hliða var ákveðið að hætta að að láta ávöxt­un­­­ar­­­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­­­­­­flokks stýra því hverjir vext­irnir eru og í stað þess myndi stjórn sjóðs­ins ákveða þá.

Þetta sagði Neyt­enda­stofa að væri ólög­legt að gera gagn­vart þeim sem tóku lán fyrir hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna fyrir apríl 2017.

í til­kynn­ingu á vef sjóðs­ins segir að á stjórn­ar­fund­inum 23. jan­úar síð­ast­lið­inn hafi verið ákveðið „að færa vaxta­við­mið aftur til fyrra horfs og þar sem vextir sam­kvæmt því við­miði hafa reynst lægri en þeir vextir sem til­kynntir voru í maí 2019 mun sjóð­ur­inn end­ur­greiða lán­tökum mis­mun­inn.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sjóðnum munu þeir lán­takar sem breyt­ingin snertir fá send bréf fyrir febr­ú­ar­lok um áhrifin á lán þeirra auk þess sem nán­ari upp­lýs­ingar verða birtar á sjóð­fé­laga­vef við­kom­andi lán­tak­enda.

Þótt áhrifin á umrædda lán­tak­endur hafi verið lítil frá því að ákvörð­unin tók gildi, í ágúst í fyrra, þá geta þau verið mikið til fram­tíðar. Lán þeirra munu enda halda áfram að miða við ávöxt­un­ar­kröfu skulda­bréfa­flokks­ins HFF150434 að við­bættu 0,75 pró­sentu­stiga álagi. Í dag myndi það þýða að breyti­legir verð­tryggðir vextir hóps­ins væri 1,73 pró­sent, eða 30 pró­sent lægri en þeir vextir sem bjóð­ast þeim sem tóku breyti­leg verð­tryggð lán hjá sjóðnum eftir apríl 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár