„Af hverju gerist ekkert á þinginu?“

Björn Leví telur að hægt sé að haga störfum þings­ins með öðrum hætti en gert er í dag.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Af hverju ger­ist ekk­ert á þing­inu? Af hverju sofna alltaf enda­laust mörg mál í nefnd eða eru lögð fram aftur og aftur og af hverju klárum við ekk­ert nema kannski enda­lausar EES-inn­leið­ingar sem ég held að sé aðal­lega það sem ger­ist hérna?“

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, spurði þess­ara spurn­inga undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann sagð­ist sjá nokkrar ástæður fyrir því af hverju mál sofn­uðu í nefnd eða væru ekki kláruð.

„Til dæmis er þing­flokkum í minni­hluta ein­fald­lega skammt­aður fjöldi þing­mála í lok hvers þings eða þing­hlés: Þið fáið eitt eða tvö mál í atkvæða­greiðslu ef þið eruð góð og hleypið fjár­lög­unum í gegn. Þið fáið líka eitt eða tvö önnur mál, en það verður að vera jafnt vegna þess að það er bauna­taln­ing í gangi,“ sagði þing­mað­ur­inn og beindi orðum sínum að meiri­hluta Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Að auki væru öll þing­mál rík­is­stjórn­ar­innar alltaf „minnsti sam­nefn­ar­inn“.

„Það er bara það sem allir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir ná að sam­þykkja sín á milli en ekk­ert umfram það, óháð því hvort meiri­hluti væri fyrir því í þing­inu eða ekki. Það er nefni­lega mik­il­vægt að átta sig á því að það gæti verið meiri­hluti í þing­inu fyrir máli sem kemst ekki í gegnum rík­is­stjórn­ina. Það hefur gerst. Það komu meira að segja tvö þannig mál á síð­asta þingi, um þung­un­ar­rof og rafrettur. Þau voru sam­þykkt óháð aðild fólks að þing­flokkum. Það væri hægt að gera svo­leiðis oftar. Það væri til eft­ir­breytni,“ telur hann.

Ákvörðun meirihlutans að starfa með þessum hætti

Enn­fremur sagði Björn Leví að eft­ir­lit þings­ins væri í algeru lág­marki í boði meiri­hlut­ans.

„Við náum ekki að skoða þau mál sem hafa verið sam­þykkt upp á það hvort þau hafa kostað eins mikið eða lítið og sagt var að þau ættu að gera, hvort vel hafi tek­ist til eða ekki. Afleið­ingin af þessu öllu er sú að það ger­ist í raun ekki neitt. Þátt fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið lengi við stjórn, ég veit ekki hve mörg ár, er „bús“ í búðir enn fjar­lægur draumur ein­hverra sem hafa kannski áhuga á því. Ég held meira að segja að meiri­hluti væri fyrir því máli á þingi ef það kæmi til atkvæða­greiðslu. En nei, þannig virkar þingið ekki. Það er ákvörðun meiri­hluta þings­ins að starfa svona. Það er hægt að gera hlut­ina öðru­vísi,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár