Þýska þingið samþykkir samkomulagið við Grikkland - 50 þingmenn meirihluta á móti

Þýska þingið hefur samþykkt samkomulag evru­ríkjanna við Grikkland, með atkvæðum 439 þingmanna gegn 119. 50 af þeim 119 sem kusu gegn samkomu­laginu eru stjórnar­þingmenn.

Þegar Angela Merkel kanslari ávarpaði þingið fyrir atkvæða­greiðsluna í morgun lagði hún áherslu á að þrír kostir hafi verið í stöðunni. Sá fyrsti að beygja reglur Evrópu svo mikið að þær hefðu ekki verið neins virði lengur. Annar kosturinn hefði verið að gefast upp og reyna ekki að bjarga Grikk­landi. Það hefði þýtt að Evrópa myndi horfa á upp á Grikk­landi blæða, og algjör ringul­reið hefði fylgt. Hvorugur þessa kosta hefði komið til greina.

Því hafi þurft að reyna í síðasta skipti að sjá hvort það væri mögulegt að ná samkomu­lagi meðal allra 19 evru­ríkjanna. Þrátt fyrir öll bakslögin hafi þetta tekist á endanum og samkomu­lagið hefði byggst á gildunum um evrópska samstöðu og ábyrgð ríkja. Hún sagði einnig að það væri ekki almenningi í Grikk­landi að kenna hvernig fyrir þeim er komið. Hún viðurkenndi einnig að tillaga Þjóðverja um tíma­bundið brott­hvarf Grikk­lands úr evru­samstarfinu hafi ekki hlotið neinn hljóm­grunn meðal hinna evru­ríkjanna.

Stjórnar­andstaðan gagnrýndi samkomu­lagið harðlega. Sahra Wagenknecht í vinstri­flokknum Die Linke sagði samkomu­lagið verulega gallað, vegna þess að það geri ekki ráð fyrir þeirri miklu niður­fellingu skulda sem Grikkir þurfi svo nauðsyn­lega á að halda. Ekki sé langt að bíða þangað til samkomu­lagið falli um sjálft sig og það þurfi að byrja aftur. Hún líkti fjármála­ráðherranum Wolfgang Shäuble við talibana, og sagði hann niður­skurðar­talibana. Samflokksmaður hennar Klaus Ernst sagði stjórn­völd í Þýska­landi hafa tekið þátt í því að kúga Grikkland.

Austurríska þingið samþykkti líka í dag að ganga til viðræðna við Grikkland. Enn eiga bæði Lettland og Eistland eftir að ræða málið í þingum sínum. Franska þingið er þegar búið að samþykkja málið með miklum meirihluta og í Finnlandi var 25 manna þingnefnd látin ákveða niður­stöðuna, og hún gaf samþykki sitt. Spænska þingið þarf ekki að samþykkja samkomu­lagið en Mariano Rajoy forsætis­ráðherra ætlar samt sem áður að láta þingið ræða og kjósa um málið. Önnur evruríki munu ekki kjósa um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár