Nordic Style Magazine semur við Barnes & Noble

Norræn hönnun er í hávegum höfð hjá fyrir­tækinu Nordic Style Magazine. Fyrir­tækið gefur út samnefnt tímarit og hefur útgáfan vaxið jafnt og þétt frá stofnun árið 2012.

Íslenski fjöl­miðillinn Nordic Style Magazine, sem heldur úti tímarita­útgáfu og vefumfjöllun um norræna hönnun og tísku, hefur ná samningi við bandaríska fyrir­tækið Barnes & Noble, sem rekur 778 bóka- og tímarita­verslanir um öll ríki Banda­ríkjanna.

Frá þessu er greint í frétta­tilkynningu frá fyrir­tækinu.

Það var stofnað árið 2012 en eigendur þess eru Soffía Theódóra Tryggadóttir og Signý Kristins­dóttir. Í tilkynningunni segir Soffía að þetta sé mikill heiður fyrir útgáfuna. „Barnes & Noble höfðu samband við okkur að fyrra bragði og lýstu yfir áhuga á því að fá Nordic Style Magazine á prenti í allar sínar verslanir, eftir að hafa fylgst grannt með heima­síðunni okkar og skoðað veftímaritin sem við gáfum út,” sagði Soffía Theódóra, en hún stofnaði útgáfuna. „Blaðið kemur út í febrúar á nýju ári og við erum ótrúlega ánægð og þakklát með að mörg af flottustu fyrir­tækjunum á Íslandi koma til með að auglýsa í fyrsta íslenska blaðinu sem fer á markað í Banda­ríkjunum.”

Í tilkynningunni segir að þær Soffía Theódóra og Signý hafi deilt þeirri ástríðu að koma norrænni og þá sérstak­lega íslenskri hönnun á framfæri á heimsvísu. „Síðan þá hefur miðillinn stækkað og dafnað og fjallar núna daglega um tísku, hönnun, listir og menningu frá öllum Norður­löndunum. Í dag skrifa um 15 manns fyrir Nordic Style Magazine frá 9 mismun­andi löndum,“ segir í tilkynningunni.

„Ég er gríðar­lega stolt af þessum uppgangi sem gerir það að verkum að íslensk hönnun og listir fá aukna athygli. Mig hreinlega óraði ekki fyrir því að skömmu eftir að við störtuðum þessu að við myndum við vera með svo miklar heim­sóknir á vefsíðuna og áhuga á efninu okkar sem kristallast kannski í því að Barnes & Noble hefur gengið hart á eftir okkur að gefa út blaðið okkar út á prenti. Það hjálpar að sjálfsögðu til að það hefur verið mikið hype í kringum Ísland undan­farin ár. Barnes & Noble vildu í raun og veru meira magn en við vorum til í að byrja með, en það er auðveldlega hægt að bæta við ef vel gengur,” segir Soffía Theódóra.

Barnes & Noble Inc var stofnað árið 1886, og er skráð á markað. Markaðs­virði þess við lokun markaða í gær var 495 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur 52 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár