Íslendingar treysta ekki Alþingi en treysta lögreglunni

Ánægja með efna­hags­lífið er stærsti þátt­ur­inn sem ákvarðar traust almenn­ings til opin­berra stofn­ana. Íslend­ingar sam­svara sig meira með þjóðum sem lentu illa í efna­hag­skrepp­unni 2008 en öðrum Norð­ur­landa­þjóðum þegar kemur að trausti til Alþingis.

Íslend­ingar treysta ekki Alþingi, en þeir treysta lög­regl­unni. Traust Íslend­inga til dóms­kerf­is­ins flöktir, en traust á öðrum opin­berum stofn­unum hefur auk­ist með tím­anum. Þetta kom fram í máli Sjafnar Vil­helms­dóttur, for­stöðu­manns Stofn­unar stjórn­sýslu­fræða og stjórn­mála, í mál­stofu á Degi stjórn­mála­fræð­innar á þriðju­dag­inn síð­ast­lið­inn.

Sjöfn hefur rann­sakað þróun póli­tísks trausts á Íslandi frá árinu 1983 til 2018. Hún sagði á mál­stof­unni efna­hags­hrunið 2008 bjóða upp á áhuga­verðan „fyrir og eftir“ sam­an­burð á þróun trausts almenn­ings til stjórn­valda.

Íslendingar treysta lögreglunni

Sjöfn lagði áherslu á að gögnin segi til um hverjir treysta og hverjir treysta ekki, en þau segi ekki til um hvort þeir sem sögð­ust ekki treysta væru skept­ískir eða fullir van­trausts

Lög­reglan hélt sínu trausti eftir hrunið og hefur traust til hennar í raun auk­ist. Traust almenn­ings á lög­regl­unni stendur í dag í 93 pró­sentum, en var 75 pró­sent 1984. Traust á opin­berum stofn­unum hefur einnig auk­ist á meðan traust á rétt­ar­kerf­inu hefur flöktað.

Munurinn á trausti til stofn­ana hefur auk­ist, en Íslend­ingar treystu opin­berum stofn­unum mun minna árið 1984 en dag­inn í dag.

Traust til Alþingis hríðféll í hruninu

Í hrun­inu 2008 hrundi traust almenn­ings til Alþingis niður í 39 pró­sent svar­enda úr 72 pró­sentum. Traust almenn­ings hefur ekki náð sér almenni­lega á skrið eftir hrun og stendur nú í 44 pró­sentum svar­enda, að því er kom fram í fyr­ir­lestri Sjafnar.

Til sam­an­burðar var traust almenn­ings á Alþingi meiri heldur en á opin­berum stofn­unum fram til árs­ins 1999 þegar traust almenn­ings á Alþingi var í fyrsta sinn minna heldur en á opin­berum stofn­unum.

Íslendingar treysta minna en aðrir norðurlandabúar

Traust íslensks almenn­ings á þjóð­þingi er minna en traust ann­arra norð­ur­landa­þjóða til eigin þjóð­þings. Almennt hefur traust almenn­ings á Norð­ur­löndum sögu­lega verið mest af Evr­ópu­ríkjum, að því er kom fram í máli Sjafnar.

Sjöfn telur að lík­indi þró­un­ar­innar séu sam­bæri­legri öðrum þjóðum sem lentu illa í efna­hag­skrepp­unni 2008, til dæmis Írlandi, Portúgal og Spáni. Löndin eiga það sam­eig­in­legt að traust til þjóð­þings féll í hrun­inu 2008 en traustið hefur síðan auk­ist tölu­vert.

Hvað útskýrir traust eða vantraust?

Svo virð­ist sem þjóð­fé­lags­staða segi mikið til um hvort ein­stak­lingar treysti stofn­unum á Íslandi. Þeir sem eldri eru, háskóla­mennt­aðir og ein­stak­lingar sem eru vel stæðir treysta frekar opin­berum stofn­unum, lög­regl­unni, Alþingi og dóms­kerf­inu, en aðrir sam­fé­lags­hópar, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar. Sterkasti þátt­ur­inn sem segir til um traust er þó ánægja með efna­hags­lífið.

Sjöfn benti á að yngri kyn­slóðir í vest­rænum ríkjum sem notið hafi langrar skóla­göngu og góðra lífs­kjara væru kröfu­harð­ari og treysti síður en eldri kyn­slóðir. Konur treysti frekar en karlar, þau yngstu og þau elstu virð­ist treysta mest. Hins vegar séu áhrif tekna og mennt­unar hverf­andi þegar búið væri að stýra fyrir öðrum þáttum.

Þeir sem sam­sami sig við stjórn­mála­flokka á Alþingi treysti betur en þeir sem ekki tengi sig við stjórn­mála­flokk. Auk þess treysti þeir frekar sem sam­sami sig við rík­is­stjórn­ar­flokka heldur en þeir sem ekki það geri, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar.

Vantraust ekki rót vandans

Sjöfn sagði van­traust eitt og sér ekki vera rót vand­ans, heldur væri van­traust birt­ing­ar­mynd ein­hvers ann­ars. Traust geti til dæmis auk­ist þegar þeir sem óánægðir séu finni sinn mann, konu, eða sinn flokk í kerf­inu. Dæmi um slíkt er þegar nýir flokkar mynd­ist.

Traust ákveð­ins hóps í Banda­ríkj­unum á stjórn­kerf­inu gæti til dæmis hafa auk­ist þegar Donald Trump komst til valda, að því er kom fram í máli Sjafnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár