Krefjast þess að þing komi saman

Þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa sent for­sæt­is­ráð­herra og for­seta Alþingis bréf þar sem þess er kraf­ist að þing komi saman vegna nýrra vend­inga í tengslum við söl­una á Íslands­banka.

Allir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar á Alþingi hafa kraf­ist þess að þing komi saman vegna nýrra vend­inga í tengslum við söl­una Íslands­banka. Rétt í þessu fór bréf þess efnis á for­sæt­is­ráð­herra Katrínu Jak­obs­dóttur og for­seta Alþingis Birgi Ármanns­son.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum.

Rík­is­stjórnin sendi frá sér yfir­lýs­ingu í morgun þar sem fram kemur að hún hafi ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

Vilja umræðu um framkvæmd stjórnvalda á sölunni

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­and­stöð­unnar segir að nú liggi fyrir að rík­is­stjórnin hygg­ist bregð­ast við þungri gagn­rýni á fyr­ir­komu­lag stjórn­valda á sölu fjórð­ungs­eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka með því að leggja Banka­sýsl­una niður.

„Rík­is­stjórnin hefur hins vegar ekki svarað fyr­ir­spurnum fjöl­miðla í viku og fund­aði ekki á hefð­bundnum fund­ar­tíma rík­is­stjórnar í dag. Samkvæmt dag­skrá Alþingis á það ekki að koma saman fyrr en hinn 25. apríl nk. Það er ótækt að mál sem varða grund­vall­ar­hags­muni þjóð­ar­innar séu til lykta leidd með frétta­til­kynn­ingum rík­is­stjórn­ar­innar.

Af þeirri ástæðu beinir stjórn­ar­and­staðan þeirri ein­dregnu kröfu til for­sæt­is­ráð­herra að þing komi saman án tafar. Er það gert með vísan til 3. mgr. 77. gr. þing­skap­ar­laga nr. 55/1991 þar sem segir að for­seta Alþingis sé skylt að boða til fundar setji for­sæt­is­ráð­herra fram ósk um það. Er því óskað atbeina for­sæt­is­ráð­herra við það að þing komi saman. Þar fari fram umræða um fram­kvæmd stjórn­valda á söl­unni,“ segir í bréf­inu.

Undir bréfið skrifa þing­flokks­for­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata, Flokks fólks­ins, Við­reisnar og Mið­flokks­ins, þau Helga Vala Helga­dóttir, Halldóra Mogensen, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Hanna Katrín Frið­riks­son og Bergþór Ólason.

Uppfært: Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur gefið það út að hún telji ekki ástæðu til að kalla saman þing. Næsti þing­fundur verður því mánu­dag­inn næst­kom­andi, 25. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár