Bretum fjölgaði um tæplega 500 þúsund í fyrra - 64,5 milljónir íbúa

Íbúar í Bretlandi er nú 64,5 milljónir en fjölgunin á milli ára nemur tæplega 500 þúsund manns. Fjölgunin er sú næst mesta í Bretlandi, sé horft til síðustu tveggja áratuga, en sem mest var fjölgunin árið 2011 þegar íbúum fjölgaði um 525 þúsund.

Íbúum í Skotlandi fjölgaði um 19.900 og eru íbúar þar nú 5,3 milljónir. Íbúum í Wales fjölgaði um 9.600 og er heildar­íbúafjöldi þar nú rúmlega þrjár milljónir. Norður-Írum fjölgaði um 10.800 manns en íbúar eru þar um 1,8 milljónir.

Fjölgunin er að stærstum hluta í Englandi, og þá einkum í London, en þar fjölgaði íbúum um 450 þúsund manns.

Í viðtali breska ríkis­útvarpsins BBC við Simon Ross, forstjóra Hagstofunnar í Bretlandi, segir hann að fjölgunin sé stöðug milli ára og setji sífellt með þrýsting á fasteigna­markað, þar sem bregðast þurfi við fjölguninni með nýbyggingum ár hvert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár