Mönnunarvandi spítalans verði ekki leystur með auknu fjármagni

Aukið fjár­magn í heil­brigð­is­kerf­inu mun ekki leysa öll vanda­mál að sögn fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði ráð­herra á Alþingi í dag hvort ekki væri full ástæða til að skoða fjár­mála­á­ætlun í ljósi neyð­ar­á­stands á bráða­mót­töku.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahgsráðherra, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hgs­ráð­herra, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Samsett

„Því er haldið fram að með því að láta Land­spít­al­ann hafa aukið fjár­magn þá leys­ist öll okkar vanda­mál. Ég held að málið sé því miður ekki svo ein­falt.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag þar sem Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði ráð­herra hvort ekki væri full ástæða til þess að end­ur­skoða fjár­mála­á­ætlun í ljósi þess neyð­ar­á­stands sem ríkir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og ætla spít­al­anum meira fé?

Logi vís­aði í við­tal við Hjalta Má Björg­vins­son, bráða­lækni og starf­andi yfir­lækni á bráða­deild Land­spít­al­ans, við mbl.is í síð­ustu viku þar sem hann sagði ástandið hið versta í sögu bráða­deild­ar­innar. Dæmi eru um upp­sagnir hjúkr­un­ar­fræð­inga á bráða­mót­tök­unni vegna langvar­andi álags og lélegs aðbún­aðar.

Logi vís­aði einnig í umsögn Land­spít­al­ans um fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023–2027, þar sem bent er á á mikið álag spít­al­ans vegna COVID-19 og hækk­andi ald­urs þjóð­ar­innar. Í umsögn­inni segir að verði það nið­ur­staðan, að fjár­veit­ingar til rekstrar Land­spít­ala hækki um eitt pró­sent á næsta ári, tvö pró­sent næstu tvö ár þar á eftir og 1,3 pró­sent árin þar á eftir, er ljóst að Land­spít­ali mun ekki ná þeirri við­spyrnu sem nauð­syn­leg er í kjöl­far COVID-19 og mun eiga mjög erfitt með að mæta þeim miklu áskor­unum sem spít­al­inn stendur frammi fyrir. „Slík nið­ur­staða yrði mikil von­brigði,“ segir í umsögn­inni.

Freistandi að spyrja ráðherra að þessu í pólitískum tilgangi

Bjarni sagði að vissu­lega væri verið að snerta á mjög mik­il­vægu máli sem varðar heil­brigð­is­þjón­ust­una í land­inu en sagði að horfa þurfi til fjöl­breytt­ari úrræða en aukið fjár­magn.

„Mönn­un­ar­vand­inn einn og sér verður ekki leystur með auk­inni fjár­heim­ild til Land­spít­al­ans. Við hljótum að geta verið sam­mála um það,“ sagði Bjarni .

„Það er eflaust í póli­tískum til­gangi dálítið freist­andi að koma með þessa ein­földu mynd, spyrja fjár­mála­ráð­herr­ann: Geturðu ekki bara mokað pen­ingum í vand­ann og þá hverfur vanda­málið? En það er því miður ekki svona,“ sagði fjár­mála­ráð­herra jafn­framt.

Logi sagð­ist með­vit­aður um að auð­vitað leys­ast ekki öll vanda­mál með auknu fé. „En það vantar,“ sagði Logi og vís­aði aftur í umsögn Land­spít­al­ans við fjár­mála­á­ætl­un­ina. „Við erum að missa okkar besta fólk vegna van­fjár­mögn­unar og vegna skorts á yfir­sýn. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra verður ein­fald­lega að líta í eigin barm vegna þess að rík­is­stjórnum hans hefur ekki tek­ist að leysa þann vanda sem hann vísar kannski til að hægt væri að leysa.“

Bjarni við­ur­kenndi að heil­brigð­is­málin heilt yfir væru gríð­ar­lega mikil áskorun en sagði flest þeirra mála sem Logi minnt­ist á ekki verða leyst úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu einu með auknum fjár­fram­lögum heldur kalli þau á mikla sam­hæf­ingu í kerf­inu í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár