Ríkisstjórnin beri ábyrgð og geti ekki firrt sig henni

Flokkur fólks­ins krefst þess að rík­is­stjórnin verji heim­ilin gegn hækk­andi hús­næð­is­kostn­aði og beiti eig­enda­valdi sínu á bank­ana – að hún grípi inn í „þessa oftöku af varn­ar­lausum heim­ilum lands­ins sem ekki er með nokkru móti hægt að rétt­læta“.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins.
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins segir að rík­is­stjórnin geti ekki firrt sig ábyrg varð­andi hækk­andi hús­næð­is­kostnað heim­il­anna.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún benti á að stýri­vextir Seðla­bank­ans væru nú 2 pró­sent. „Ef vextir á hús­næð­is­lánum bank­anna væru í sama hlut­falli við stýri­vexti og þeir voru til dæmis í maí 2019 ættu þeir núna að vera 2,7 pró­sent en eru í kringum 4,2 pró­sent og eiga lík­lega eftir að fara hækk­andi.“ Spurði hún í fram­hald­inu hvort bank­arnir hefðu ekki fengið nóg frá heim­ilum lands­ins.

„Er engin krafa um sam­fé­lags­lega ábyrgð á eig­endur og stjórn­endur bank­anna? Eru þeir bara alger­lega stikk­fríir og geta alltaf farið sínu fram með hina heilögu arð­sem­is­kröfu fjár­festa að vopni? Hver ákvað að heim­ilin væru auð­lind sem þeir gætu mis­notað að vild? Hvenær var þjóðin spurð hvort hún væri sátt við að vera upp­spretta auðs fyrir útval­inn hóp fjár­festa? Að sjálf­sögðu aldrei,“ svarar hún sjálf.

Segir ríkisstjórnina sitja hjá

„Við hér á Alþingi segj­umst öll ætla að vinna fyrir fólkið. En hvað er rík­is­stjórnin að gera fyrir fólkið og heim­ilin í því ástandi sem nú er? Ekkert, nákvæm­lega ekk­ert. Hún situr hjá og lætur eins og henni komi þetta ekki við. Eins og heim­ilin séu ekk­ert annað en veiði­lendur bank­anna og þar hafi þeir ótak­mark­aðan kvóta til ofveiða til að auka nú þegar stjarn­fræði­legan hagnað sinn.“

Benti hún enn fremur á að tveir af þremur bönkum væru enn í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. „Rík­is­stjórnin ber ábyrgð og getur ekki firrt sig henni. Hvernig er yfir­leitt hægt að rétt­læta að fyr­ir­tæki með tug­millj­arða hagnað hækki álögur á við­skipta­vini sína? Það er rík­is­stjórn­ar­innar að verja rétt­ar­stöðu heim­il­anna gagn­vart þess­ari oftöku. En nei, hún hefur ákveðið að standa hjá og fórna þeim aftur. Að minnsta kosti 15.000 fjöl­skyldur misstu heim­ili sín eftir síð­asta hrun. Á það að ger­ast aftur?“

Ást­hildur Lóa end­aði mál sitt á að segja að Flokkur fólks­ins krefð­ist þess að rík­is­stjórnin verði heim­ilin gegn hækk­andi hús­næð­is­kostn­aði og beitti eig­enda­valdi sínu á bank­ana, að hún gripi inn í „þessa oftöku af varn­ar­lausum heim­ilum lands­ins sem ekki er með nokkru móti hægt að rétt­læta. Hennar er ábyrgðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár